Johanna Gustafsson-Ahlzén
Við lifum á tímum þar sem æ fleiri atburðir í lífi barna og unglinga eiga sér áhorfendur. Slíkur raunveruleiki, þar sem fyrirmyndirnar eru foreldrar í starfi áhrifavalda, líf fyrir opnum tjöldum er orðið að normi og hið ósvikna er orðið að söluvöru, er sögusvið unglingabókarinnar Det känns så fake („Þetta virkar svo feik“, hefur ekki komið út á íslensku) eftir Johönnu Gustafsson-Ahlzén.
Elektra hefur alist upp hjá einstæðri móður sinni, Kimmy, sem framfleytir fjölskyldunni sem bloggari og momfluencer. En starfið hefur sínar skugahliðar: til að laða að sér fylgjendur og samstarfsaðila veður Kimmy ítrekað yfir mörk Elektru. Þetta nær hámarki í vikunni sem gamalli bloggfærslu um kvíðaköst Elektru er deilt inn á spjallhóp bekkjarins hennar og Kimmy er útnefnd „NO-FILTER-MAMI“ áratugarins.
Hver eru þessi börn sem upplifa að þeirra persónulegasta reynsla er filteruð, snyrt til og henni deilt? Hvað felst í því fyrir unglinga að vera berskjaldaðir á þennan hátt? Hvernig myndi þeirra eigin rödd hljóma? Det känns så fake er saga sem hefur beðið þess að vera sögð. Frásögn Johönnu Gustafsson-Ahlzén hefur þétta byggingu, er full af orku og knúin áfram af reiði og húmor. Höfundurinn nýtur sín greinilega í hinu skondna og grófa í textanum. Satíran sem hér er beint að samfélagi áhrifavalda fléttast saman við líkamlega innilokunarkennd og bókstaflegt blóðbað. Mitt í öllu saman höfum við valdaójafnvægið milli unglinga og foreldra þeirra – sáran punkt sem höfundurinn hvorki forðast né einfaldar. Uppreisn gegn foreldrum er ekki auðveld, kannski er ekki einu sinni hægt að framkvæma hana fyllilega, en þó er mögulegt að endurheimta eigin heilindi.
Í dag geta unglingar kynnst frásögnum úr eigin reynsluheimi í mörgum fleiri miðlum en raunsæjum unglingabókum. Det känns så fake minnir okkur á getu unglingabókmennta til að halda tryggð við unga lesendur með því að bjóða þeim tól til að takast á við heim hinna fullorðnu, en einnig á það að bókmenntir geta verið sérstakt rými til hugsunar, andspyrnu og mótunar sjálfsins. Þess vegna er Det känns så fake ekki aðeins samtímalýsing sem hittir í mark, heldur sýnir hún svo ekki verður um villst að unglingabækur geta enn átt erindi.
Johanna Gustafsson-Ahlzén (f. 1992) er starfandi myndasöguhöfundur, myndlýsandi og bókasafnsfræðingur. Hún nam við Serieskolen í Malmö og lýðháskólann í Jakobsberg. Det känns så fake er fyrsta fagurbókmenntaverk hennar.