Landvernd - Ísland

Landvernd hlýtur tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026.

Landvernd eru elstu og fjölmennustu náttúru- og umhverfisverndarsamtök Íslands og hefur frá stofnun samtakanna árið 1969 verið unnið að vernd náttúru, eflingu umhverfisvitundar og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Eitt mikilvægasta framlag Landverndar til framtíðarinnar er öflugt menntastarf sem hefur byggt upp þekkingu, ábyrgð og þátttöku nýrra kynslóða í umhverfis- og loftslagsmálum.

Landvernd eru tilnefnd til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026 fyrir hönd Íslands fyrir framlag sitt til að efla sjálfbæra þróun með menntun, valdeflingu og virkri samfélagsþátttöku. Í meira en tvo áratugi hefur menntateymi Landverndar byggt upp öflugt og nýskapandi starf sem nær til barna, ungmenna, kennara og skólasamfélaga um allt Ísland sem hefur skapað varanleg áhrif á viðhorf, þekkingu og umhverfishegðun heilla kynslóða.

Kjarni starfsins felst í að umbreyta umhverfisfræðslu í virka þátttöku. Með verkefnum á borð við Grænfánann, Vistheimt með skólum og Umhverfisfréttafólk fá börn og ungmenni ekki aðeins fræðslu um loftslagsmál, náttúruvernd og sjálfbærni heldur einnig tækifæri til að rannsaka, greina, taka ákvarðanir og hrinda lausnum í framkvæmd. Þannig verður menntunin valdeflandi og leiðir til raunverulegra breytinga innan skóla og nærsamfélags.

Starfið einkennist af nýsköpun þar sem sameinuð eru vísindaleg þekking, nútímaleg kennslufræði og skapandi þátttaka. Sérstaklega hefur Landvernd þróað Umhverfisfréttafólk þannig að ungt fólk getur nýtt fjölbreyttar miðlunarleiðir, allt frá heimildarmyndum og vefsíðum til myndlistar, leikja og annarra nýrra tjáningarforma. Með því er rödd ungs fólks efld og umhverfismál gerð aðgengilegri og persónulegri.

Grænfáninn nær í dag til um 150 skóla á öllum skólastigum og hefur orðið einn umfangsmesti vettvangur umhverfismenntunar á Íslandi. Aðferðafræðin byggir á virkri þátttöku, samstarfi og stöðugum umbótum og má aðlaga að ólíkum menntakerfum og samfélögum.

Það sem gerir framlag Landverndar sérstakt er að samtökin hafa í meira en tvo áratugi byggt upp sjálfbæran vettvang þar sem börn og ungmenni eru ekki aðeins frædd um umhverfisáskoranir samtímans heldur valdefld til að verða virkir þátttakendur í lausnum þeirra. Með nýskapandi menntastarfi, víðtækri þátttöku og mælanlegum samfélagsáhrifum hefur Landvernd skapað fyrirmynd sem hefur bæði langtímagildi og skýrt yfirfærslugildi til annarra landa.