Malin Klingenberg og Maria Sann

Ljósmyndari
Arja Lund / Vanessa Forsten
Malin Klingenberg og Maria Sann: Gamlingarna, myndabók, S&S, 2025. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026.

„Við förum bara í almenningsgarðinn meðan það er bjart. Þegar dimmir koma nefnilega gamlingjarnir.“ Svona hefst hin spennandi, myndlýsta hryllingsbók Gamlingarna („Gamlingjarnir“, hefur ekki komið út á íslensku) eftir Malin Klingenberg og Maria Sann, þar sem þrjú börn þora ekki að fara á leikvöllinn vegna hóps sem þeim líkar illa við og óttast. En hverjir eru eiginlega þessir „gamlingjar“ og hvaða rétt hafa þeir til að ákveða hver fær og fær ekki að vera í almenningsgarðinum? 

Gegnum sjónarhorn barnsins, þrungið af samstöðu, draga Klingenberg og Sann upp mynd af hversdagslegum átökum sem hafa mikla þýðingu fyrir hinar smávöxnu aðalpersónur, sem finnst þeim hafa verið meinað með ósanngjörnum hætti að vera á stað sem þau ættu með réttu að fá að vera á. Alvara valdabaráttunnar fær í senn skondin og frelsandi blæbrigði andspænis því spennuþrungna augnabliki þegar börnin hitta andstæðinga sína augliti til auglitis. 

Þessi sameiginlega frásögn tveggja myndhöfunda er listilega unnin. Þrátt fyrir einfalda framsetningu er undirtexti bókarinnar drekkhlaðinn merkingu. Dramatísk atburðarás og þétt andrúmsloft er borið uppi af afar knöppum texta, drungalegri litapallettu, stríðnislegum skuggum, leyndardómsfullum útlínum, djörfum sjónarhornsskiptum, tjáningarríku augnaráði og svipbrigðum. Lesendur mæta heimi barnsins þar sem ótti og yfirvofandi hætta kemst alveg inn að skinni og er nært á ímyndunaraflinu, en verður á endanum viðráðanlegt með hugrekki og brennandi réttlætiskennd að vopni. 

Malin Klingenberg (f. 1979) er margverðlaunaður finnlandssænskur rithöfundur sem gaf út sína fyrstu bók árið 2010. Síðan þá hefur hún einkum skrifað barnabækur og myndabækur í samstarfi við ýmsa myndhöfunda. Hún hefur gefið út um 30 verk sem hafa samanlagt verið þýdd á 15 tungumál.

Maria Sann (f. 1982) er finnskur myndhöfundur sem hefur myndlýst um 10 barna- og myndabækur síðan fyrsta bók hennar kom út árið 2019. Árið 2021 hlaut hún Rudolf Koivu-verðlaunin fyrir myndabókina Bokstavsvärldar, sem inniheldur texta eftir Henriku Andersson. Gamlingarna (2025) er fjórða myndabókin sem Klingenberg og Sann vinna í sameiningu og er hún sjálfstætt framhald af bókunum Främlingarna (2021) og Rymlingarna (2024) þar sem sömu þrjú börnin kanna sambönd og valdatengsl fólks á sinn einstaka hátt.