Molly Wittus

Ljósmyndari
Molly Wittus
Molly Wittus: Wonga og rævene, Jensen & Dalgaard, myndabók, 2024. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025.

Wonga og rævene („Wonga og refirnir“) er kankvís og afar fjörug frásögn um það að finna sinn stað í þessum furðulega heimi, stað þar sem maður tilheyrir þrátt fyrir allt. Hvort sem það er í rigningunni, í skóginum eða í litla húsinu einhvers staðar þarna úti, þar sem einsemdinni er fyrst raskað af einum ref og svo fleiri. Það er alltaf pláss fyrir einn ref í viðbót í sófanum, undir borðinu eða við bókahilluna. Þannig eignast einsemdin þjálfunarfélaga. Refirnir verða skýr tákn þess að þrátt fyrir að maður flytji langt burt – kannski til að hlúa að sjálfum sér – lærir maður alltaf að það þarf líka að hlúa að öðrum.  

Mikið hefur verið skrifað og teiknað um það þegar náttúran hefur innreið sína í menninguna en sjaldan hefur því verið lýst eins vel og hér. Hinir barnalegu, lágkúrulegu og afar blautu og ókurteisu refir taka húsið yfir, hægt en örugglega. Aðalpersónan Wonga veitir þeim húsaskjól og leyfir þeim að þurrka sig, þótt hún hafi raunar alveg nóg á sinni könnu. Það er nefnilega snúið að fá ermi til að sitja rétt á regnkápunni sem hún er að sauma fyrir enn eina skógarferðina, fyrir það sem aðrir kalla gjarnan vont veður. Wonga elskar það, af því að einhver þarf jú alltaf að elska það sem flestum mislíkar. Bæði texti og myndir eru einfaldar og blátt áfram. Um leið er frásögnin afar beitt, djúp og geymir skilaboð um að þora að gera eitthvað annað, vera eitthvað annað – og verða þar með maður sjálfur.  

Þroski getur átt sér ýmsar birtingarmyndir Þó hefur skort frásagnir sem fjalla um algera umbreytingu. Hafi maður á annað borð boðið ref inn í stofu til sín breytir varla miklu hvort það er einn eða fleiri. Hér er lýst mikilli gestrisni sem leyfir einum raunsæjum heimi ekki að setja sér skorður, heldur er hún til allrar hamingju opin fyrir öllum hinum heimunum. Heimum þar sem hátt er til lofts, þar sem ímyndunaraflið fær að blómstra eins og margslunginn óður til allra þeirra – með eða án regnkápu – sem þora að opna dyrnar fyrir einhverju sem er stærra en þau sjálf.  

Frásögnin minnir á það hvernig fólk talar við sig sjálft í einrúmi. En Wonga finnur ekki til einsemdar. Einsemdin fær nefnilega ekki að taka mikið pláss þegar náttúran bankar upp á og kemur inn. Það fylgir því fegurð, skerpa og hugrekki að segja frá afar stórum hlutum á mjög einfaldan hátt í texta og myndum.  

Við erum allavega mörg sem kæmum glöð í skógarferð með Wonga í ausandi rigningu, í regnkápu og með ref í hendi.  

Molly Wittus (f. 1985) er myndhöfundur og rithöfundur. Hún nam við Kunstakademiets Designskole og Forfatterskolen for Børnelitteratur. Fyrsta bók Molly Wittus sem myndhöfundar, På hotel, kom út árið 2023 en texti bókarinnar er eftir Reimar Torkil Juul.