Pekko Käppi

Ljósmyndari
AJ Savolainen
Pekko Käppi hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Pekko Käppi (f. 1976) er annars vegar sérfræðingur í hinu forna finnska hljóðfæri jouhikko, þjóðlegri strokhörpu sem minnir á langspil, og hins vegar hamslaus frumkvöðull í þjóðlagatónlist. Käppi hrífur áheyrendur með rokkkenndum strokhörpuleik og kraftmiklum söng, hvort sem hann kemur fram einn, með hljómsveit sinni eða í einum af fjölda annarra skapandi tónlistarhópa. Pekko Käppi hefur sökkt sér í eldri þjóðlagatónlist sem tónlistarþjóðfræðingur og doktorsnemi sem sérhæfir sig í þjóðlagahefðinni en einnig sem skapandi og afkastamikill listamaður, tónskáld og tónlistartúlkandi.

Það sem helst einkennir tónlistarsköpun Pekko Käppi er strokharpan, hljóðfæri sem hefur oft verið álitið takmarkað en sem Käppi hefur svo sannarlega tekist að þenja út yfir öll mörk. Strokharpan er þekkt fyrir dempaðan hljóm en í rafmögnuðum flutningi Käppi hefur komið á daginn að hún hentar einnig vel á þungarokkshátíðum. Einkum í lifandi flutningi á hann til að kasta sér út í dáleiðandi rokkaða tjáningu. Í söngtextum hans fléttast goðsagnakenndur heimur þjóðlegs kveðskapar saman við dystópíska og ógnvekjandi framtíðarsýn með tilþrifamiklum hætti.

Pekko Käppi hefur gefið út afar fjölbreytilegar plötur frá árinu 2001. Stundum heillar hann áheyrendur með rólegum, hefðbundnum og mínímalískum einsöng og einleik, flauelsmjúkri rödd og spilastíl. Í sinni sterkustu mynd getur hin frumstæða orka sem býr í karelískum sjamanisma Käppi umbreyst í nokkurs konar finnskan vúdúgaldur og þjóðleg einkennin á tónlist hans nálgast þá jarðbundinn blús eða sækadelískt þungarokk.

Þungamiðjan í plötuútgáfu Käppi eru hinar fimm sólóplötur hans og plöturnar fimm sem hann gaf út ásamt hljómsveit sinni, Pekko Käppi & K:H:H:L. Önnur sólóplata hans, Vuonna '86 („Árið ’86“, 2010) var valin þjóðlagatónlistarplata ársins í Finnlandi og fyrsta plata K:H:H:L, Sanguis Meus, Mama! (2015) var tilnefnd til Teosto-verðlaunanna og Phonophile Nordic Music Prize.

Pekko Käppi & K:H:H:L hafa komið fram víða um heim, meðal annars á stórum heimstónlistarhátíðum á borð við WOMAD, WOMEX, Eurosonic og Folkelarm. Að auki hafa plötur sveitarinnar verið ofarlega á vinsældalistum heimstónlistar víða um heim.