RÓTIN - Færeyjar
RÓTIN í Klaksvík er unglinga- og eftirskóli sem á einstakan hátt umbreytir norrænum gildum um sjálfbærni, samstöðu og virðingu fyrir náttúrunni í áþreifanlegar aðgerðir. Skólinn á skilið umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs fyrir markvisst starf sitt við að gera sjálfbærni að eðlilegum hluta af daglegu lífi og lífsskilningi ungs fólks.
Heitið Rótin vísar til þess sem veitir næringu, festu og vöxt. Það er sterk táknmynd fyrir starf skólans: gildin og þekkingin sem nemendur fá með sér festa rætur hjá hverjum og einum og breiðast áfram til fjölskyldna, nærsamfélags og samfélagsins í heild. Þannig stuðlar RÓTIN að langtímabreytingum sem ná langt út fyrir veggi skólans.
Í RÓTINNI læra nemendur ekki aðeins um umhverfi og loftslag í gegnum fræðilega kennslu, heldur með verklegri reynslu og daglegum ákvörðunum. Kennslan byggir á hrynjandi náttúrunnar og árstíðabundnum breytingum, sem veitir nemendum dýpri skilning á því hvernig manneskjan er háð auðlindum náttúrunnar. Jafnframt er lögð rík áhersla á að draga úr sóun og meta hráefni og efnivið að verðleikum. Nemendur læra að gera við, endurnýta og skapa nýtt úr þeim auðlindum sem þegar eru til staðar í stað þess að henda þeim.
RÓTIN er einnig lifandi náms- og menningarmiðstöð sem býður upp á gistiaðstöðu og námskeið á sviðum eins og hönnun, prjóni, matargerð og skapandi handverki. Sameiginlegt með starfseminni er að hún byggir á sjálfbærum prinsippum, staðbundnum auðlindum og virðingu fyrir norrænum handverkstradítiunum. Hér sameinast nútímalegur lífsstíll og ábyrg neysla með tilliti til náttúrunnar.
Með heildstæðu starfi sínu á sviði náttúruskilnings, hráefnisnýtingar, handverks, samfélags og símenntunar er RÓTIN fyrirmynd fyrir norrænar mennta- og menningarstofnanir. Skólinn sýnir hvernig sjálfbærni getur orðið eðlilegur hluti af daglegu lífi og skapað jákvæð áhrif sem berast áfram til komandi kynslóða.