Sara Lundberg

Sara Lundberg
Ljósmyndari
Ola Kjelbye
Sara Lundberg: Ingen utom jag, Natur & Kultur, myndabók, 2024. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Þegar orðin þrýtur tekur hið mikla ævintýri við. Í Ingen utom jag („Enginn nema ég“) sýnir rithöfundurinn og myndhöfundurinn Sara Lundberg enn einu sinni að það er ekki að ástæðulausu sem hún er talin til helstu myndabókahöfunda Svíþjóðar.  

Lundberg býður lesendum og meðlesendum í svimandi ferðalag gegnum alvöru, leik og ímyndun. Þetta er mikill fengur fyrir unnendur myndabóka þar sem upplestur fyrir barnið gefur tilefni til að uppgötva ýmislegt í sameiningu. Lesendur geta leitað og fundið merkingu í smáatriðum, eða bara leyft litum og formum að flæða yfir sig. Textinn er knappur en myndirnar þeim mun innihaldsríkari. Með vatnslitum og krít fyllir Lundberg bókina af bæði tíma og rúmi.  

Margir fullorðnir kannast eflaust við það hvernig tal barna getur orðið að skvaldri, bakgrunnsklið undir hugsunum um það sem þarf að hafa meðferðis á ströndina, hvað á að hafa í kvöldmatinn, hvort eitthvað þurfi að kaupa á leiðinni heim, og hversu indælt það væri að fá að tala við fullorðna manneskju í dálitla stund. Lundberg færir okkur nútímalega móður sem leiðir hugann að móður villta smábarnsins í bókum Barbro Lindgren og Evu Eriksson (Vilda bebin) eða móður Max í Þar sem óhemjurnar eru. Hér er hún með líkama, snúð í hárinu og íklædd blómakjól. Hún er á staðnum með litla barnshöndina í sinni, en augnaráð hennar beinist í aðrar áttir og að öðru fólki, og hugleiðingum og löngunum barnsins er svarað með annars hugar umli. 

Innan um blöð vatnaliljanna og slútandi krónur trjánna verður höndin, sem móðirin hefur sleppt takinu á, að tækifæri barnsins til að grípa til aðgerða. Sögumaðurinn stígur inn á svæði leiks og ímyndunarafls og það sem í fyrstu gæti virst óöruggt og framandi verður villt og fallegt. Lundberg skiptir lipurlega úr ljósi yfir í myrkur, úr ró yfir í ákefð. Með breiðum og djörfum en jafnframt nákvæmum strokum dregur hún upp mynd af heimsreisu og könnunarleiðangri þar sem aðalpersónan uppgötvar sinn eigin mikilleika og jafnframt mikilfengleika heimsins.  

Vatnið vísar veginn þegar lesandinn fylgir barninu á ferðalagi þess. Fjölbýlishús, kvöldverðir, höggnir skógar, sannkallaðir frumskógar og frumskógabörnin sem þar er að finna – allt rúmast þetta í heimi aðalpersónunnar. Tungutak og myndlýsingar sýna svo ekki verður um villst að Sara Lundberg hefur góða tilfinningu fyrir innra lífi barna. Hún lætur allar stíflur bresta svo að úr verður foss sem hrífur lesandann með sér. 

Ingen utom jag er stórsigur í flokki myndabóka. Hver einasti myndreitur er hreint listaverk!  

Sara Lundberg (f. 1971) hefur meðal annars stundað nám við Konstfack og Konunglega listaháskólann í Stokkhólmi og hefur markað sér sess sem margverðlaunaður myndhöfundur og rithöfundur. Meðal annars hefur hún hlotið August-verðlaunin tvisvar, síðast árið 2017 fyrir bókina Fågeln i mig flyger vart den vill sem hlaut einnig Snöbollen-verðlaunin fyrir bestu sænsku myndabók ársins 2017.