Sofia Jernberg
Ljósmyndari
Jon Edergren
Sofia Jernberg hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025
Sofia Jernberg (f. 1983) er söngkona og tónskáld sem hefur allan heiminn að starfsvettvangi og er frumkvöðull á sviði nútímaspunatónlistar.
Jernberg hefur annan fótinn í djasstónlist og hinn í listrænni tónlist. Hún er sannkallaður meistari á sínu sviði og raddbeitingin einkennist af gríðarlegri breidd og fjölbreytni. Söngur hennar er fagur, hrár, undraverður og hárbeittur. Hún er virk í öllu frá nútímaóperu til frjálsrar spunatónlistar, kemur fram úti um allan heim og allt frá því að hún hóf feril sinn í hópnum Paavo (ásamt Cecilia Persson píanóleikara) hefur hún fetað tónlistarlega braut sem er síbreytileg og án málamiðlana. Hér er á ferð einstakur tónlistarmaður sem starfar af miklum heilindum.