Trondheim Jazzorkester
Á 25 ára ferli hefur þrándheimska sveitin Trondheim Jazzorkester fest sig í sessi sem einstök hljómsveit í hópi þeirra bestu á alþjóðavettvangi. Hljómsveitin hefur leikið á virtum tónleikastöðum í New York og Tókíó og kemur reglulega fram víða um Evrópu. Hún hefur átt í samstarfi við frægt tónlistarfólk á sviði alþjóðlegrar djasstónlistar, svo sem Chick Corea, Pat Metheny, Joshua Redman og Jason Moran. Sveitin stendur einnig fyrir verkefninu JazZtipendiat, árlegum styrk sem veitir ungu tónlistarfólki tækifæri til að þróa hæfileika sína.
Sveitin er skipuð meðlimum úr hópi virts tónlistarfólks og er fjöldi þeirra mismunandi eftir verkefnum. Samsetning hljóðfæra er ákveðin af kostgæfni fyrir hvert og eitt verkefni. Þetta skilar sér í tjáningarríkum, leikandi og kraftmiklum hljómi sem ber flutninginn uppi án þess að bitna á hinum sterku einstaklingsröddum sveitarinnar.
Listrænir stjórnendur hljómsveitarinnar hafa ávallt lagt áherslu á að ná fram sömu gæðum og einkenna litla tónlistarhópa, sem veitir meira rými fyrir hvatvísi og spuna en vanalega tíðkast í stærri hljómsveitum af þessu tagi. Mikið er lagt upp úr einkennandi tónlistarsköpun sem grundvallast á hlustun og forvitni um nýja möguleika tónlistarinnar.
Stíll sveitarinnar tilheyrir nútímalegri djasshefð og hún sækir innblástur í djasssöguna eins og hún leggur sig, auk fleiri tónlistarstefna og strauma úr öllum heimshornum.