Uilu Pedersen og Susanne Jensen

Ljósmyndari
Inuk Silis Høegh, privat
Uilu Pedersen og Susanne Jensen (myndhöf.): Pilu, Milik Publishing, barnabók, 2024. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025.

Sagan fjallar um barn sem öðlast kjark til að halda í ferðalag á vit hins ókunna og sigrast á eigin ótta. Þetta er saga með bæði grænlenskt og almennt gildi um að efla sjálfstraust barna sem eru óviss um eigin getu og stefnu í lífinu. 

Náttúra og menning Grænlands liggja til grundvallar í þessu algilda ævintýri, þó að lífleg og uppbyggileg frásögnin geymi einnig skýrar hliðstæður við grænlenskar goðsagnir og þjóðsögur þar sem mikilfengleg náttúra landsins og dýralíf gegna lykilhlutverki.

Fallegar og grípandi myndir Susanne Jensen dýpka frásögnina með afar sérstæðum hætti. Bókin minnir um margt á aðrar bækur með algilda skírskotun, svo sem Litla prinsinn, og hentar bæði til upplestrar og fyrir börn til að lesa sjálf.  

Í frítíma sínum róa Pilu og pabbi hans saman út á kajak. Dag einn eru þeir á leið út á sjó til að Pilu geti lært að snúa við á kajaknum – nokkuð sem er mikilvægt að kunna, en sem Pilu er hræddur við. Pabbi hans verður niðursokkinn í símtal og skyndilega verður Pilu þess var að hann er kominn langt út á sjó, hefur borist með straumnum. Hann stingur árinni í vatnið og sogast niður í djúpið. Þegar hann rankar við sér litast hann um og sér að hann er niðri í sjónum, í hliðstæðum veruleika þar sem Straumurinn ríkir. 

Hann hittist vængjasnigilinn Aataaliannguaq, sem verður honum traustur félagi gegnum ýmsar áskoranir til sjós og fjalls þar sem hrafnar, skuggar, bálkestir og refur með stýfða rófu hjálpa þeim að komast að fjallinu stóra. Þar fær Pilu loks tækifæri til að kljúfa yfirborð hafsins á ný og komast heim. 

Uilu Pedersen (1986) ólst upp í Aasiaat á Norður-Grænlandi. Hún er menntuð í sálfræði, hefur búið í Nuuk frá árinu 2014 og starfar þar sem sálfræðingur. Pilu er fyrsta bók hennar.

Susanne Jensen (1958) ólst upp í Nuuk. Hún er menntuð í kennslufræðum og listmeðferð og býr í Nuuk þar sem hún kennir meðal annars börnum myndlist.