Varna Marianne Nielsen
Varna Marianne Nielsen hefur algjöra sérstöðu innan grænlenskrar og norrænnar tónlistar. Rætur hennar liggja í trommudans- og trommusöngshefð Austur-Grænlands og hún vinnur ötullega að því að varðveita þá hefð og auka sýnileika hennar. Það eru þó einkum raftónlistarverk hennar frá 2023 (Pilarnga) og fram á þennan dag sem hafa vakið athygli á henni.
Varna samdi tónlistina á Sila, söng inn á plötuna, tók hana upp og framleiddi. Í tónsmíðum sínum fléttar hún trommusöng saman við nútímalagasmíðar, forupptekin hljóð og raftónlist svo að úr verður afar frumleg tjáning sem á engan sinn líka. Í tónlist hennar mætast hefð og nútími, hið mennska og hið stafræna, náttúran og borgarlífið.
Auk tónlistar vinnur Varna með dans, búninga og vídjólist sem hún fléttar saman á tónleikum sínum í grípandi, þverfagurfræðilegar upplifanir.
Samfara þeirri ólgu sem skapast hefur undanfarið vegna áhuga Bandaríkjanna á Grænlandi hefur Varna einnig sent frá sér öflug og ögrandi lög um sjálfsákvörðunarrétt Grænlands.