World Saving Hustle – Noregur
World Saving Hustle hlýtur tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025.
World Saving Hustle (WSH) er samstarfsnet sem tengir saman og veitir innblástur ungu fólki sem brennur fyrir því að vernda náttúru, dýralíf og mannfólk. Frá stofnun samstarfsnetsins árið 2017 hafa þúsundir þátttakenda komið að verkefnum þess til að gera heiminn að betri stað. Umhverfisvernd er miðlæg í öllu starfi samstarfsnetsins, enda hefur hún áhrif á allt sem lifir og er því leiðarljós í öllum átaksverkefnum og herferðum.
WSH tekur virkan þátt í fjölda verkefna um að berjast gegn loftslagsvánni og standa vörð um líffræðilega fjölbreytni. Árið 2019 stóð samstarfsnetið fyrir undirskriftaherferð sem fékk mörg af fylkjum Noregs til að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum. Að auki hefur WSH beitt sér gegn námuvinnslu á hafsbotni og skipulagt hreinsunaraðgerðir þar sem safnað hefur verið fleiri tonnum af rusli úr sjónum.
Það sem greinir WSH frá öðrum umhverfis- og loftslagssamtökum er hin sterka nærvera á samfélagsmiðlum og geta til að laða að og virkja ungmenni sem vilja leggja sitt af mörkum. Hinar staðbundnu deildir samstarfsnetsins standa fyrir vinnusmiðjum, vitundarvakningum og beinum aðgerðum. Einnig er mikil áhersla lögð á að meðlimir hlúi að sjálfum sér og að sjálfboðaliðar fái stuðning til að takast á við þær andlegu áskoranir sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér.
Undanfarið ár hefur félögum fjölgað ört og eru virkir félagar nú rúmlega þúsund í átta virkum deildum, auk fjölda sprotaverkefna við framhaldsskóla um allan Noreg. Með auknu fjármagni verður aukið við starfsemina, fleiri staðbundnar deildir stofnaðar og starfsfólk ráðið. Vinsældir samstarfsnetsins á samfélagsmiðlum hafa ekki bara leitt til aðgerða á landsvísu heldur einnig veitt fólki um allan heim innblástur.
WSH gegnir mikilvægu hlutverki á Norðurlöndum við að efla getu einstaklinga og nærsamfélaga til að grípa til þýðingarmikilla aðgerða fyrir grænna og sjálfbærara samfélag.