Ying-Hsueh Chen

Ljósmyndari
Nah Seung Yull
Ying-Hsueh Chen hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Ying-Hsueh Chen (f. 1983) er framsýnn og framúrskarandi slagverksleikari sem kemur upprunalega frá Taívan en hefur nú búið í Danmörku í bráðum tuttugu ár. Í Danmörku hefur hún meðal annars skapað vettvanginn Ancestral Modernism og hefur undanfarin ár unnið þar að verkefnum á sviði hefðbundinnar asískrar tónlistar og nútímatónlistar. 

Sem einleikari er hún einkum þekkt fyrir flutning sinn á verkum Iannis Xenakis – eitt af mörgum slíkum myndskeiðum hennar á YouTube hefur fengið yfir 137 þúsund spilanir. Árið 2023 gaf hún út geisladiskinn Dark Radiance sem hlaut fjölda lofsamlegra dóma, meðal annars sex hjörtu í Politiken. 

Leikur Ying-Hsueh Chen einkennist ávallt af heillandi og djúpri einbeitingu og útgeislun hennar og fallegt látbragð skapa sterka nærveru á sviði. Gagnrýnin nálgun hennar hefur einnig skilað sér í tilhneigingu til að vera vandlát í vali á verkum og samstarfsaðilum. Af þeim sökum hefur hún ekki verið áberandi í meginstraumi dansks tónlistarlífs en á hinu sértækara sviði alþjóðlegrar tónlistar er hún einstök stjarna.