Zozo

Bilde fra filmen Zozo
Photographer
Per-Anders Jörgensen Copyright: Memfis Film
Sænska kvikmyndin Zozo hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2006. Josef Fares handritshöfundur og leikstjóri og Anna Anthony framleiðandi Zozo skipta verðlaununum á milli sín.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs nema 350.000 dönskum krónum (um 4 milljónum íslenskum krónum)og verða afhent við hátíðlega athöfn í tengslum við árlegt Norðurlandaráðsþing í Kaupmannahöfn miðvikudaginn 1. nóvember.

Tilkynnt var um handhafa Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs á fréttamannafundi í Sænsku kvikmyndastofnunni í Stokkhólmi miðvikudaginn 11. október. Zozo var ein af 10 norrænum kvikmyndum frá Norðurlöndunum 5 sem tilnefnd var til verðlaunanna.

Dómnefndin rökstyður ákvörðun sína á eftirfarandi hátt:

„Zozo er grípandi kvikmynd um þær aðferðir sem barn notar til þess að takast á við stríð, sorg og framandi menningu”. Kvikmyndin notfærir sér margvísleg tjáningarform og tengir sterka raunsæisfrásögn við ljóðræna myndræna tjáningu, ímyndunarafl og húmor. Hún er aðgengileg og næm innsýn í raunveruleg átök og með því að notfæra sér skapandi kraft frá mismunandi kvikmyndamenningu leggur hún sitt af mörkum til endurnýjunar á sterkri hefð norrænna kvikmynda sem fjalla um uppvaxtarárin.”

Aðalpersónan Zozo elst upp í Beirút. Þrátt fyrir átök í landinu lifir hann venjulegu lífi í skóla og með vinum sínum. Dag einn gerast skelfilegir hlutir og hann verður viðskila við fjölskyldu sína; hann verður því að halda lífinu áfram á eigin spýtur. Einasta lausnin er að reyna að komast til Svíþjóðar – lands sem er honum algerlega framandi.

Zozo kemur í kjölfar grínmyndanna Jalla! Jalla! Og Kopps, sem nutu mikilla vinsælda. Sagan er mun dramatískari og tilfinningaþrungnari en engu að síður sögð með hinni manneskjulegu kímnigáfu og sjónræna stíl sem einkennir Josef Fares.

Handrit og leikstjórn: Josef Fares

Josef Fares fæddist í Líbanon árið 1977. Tíu árum seinna flutti hann og fjölskylda hans til Svíþjóðar, nánar tiltekið Örebro. Þar hóf Josef, 15 ára gamall, að gera eigin kvikmyndir og senda þær á kvikmyndahátíðir fyrir áhugamenn. Eftir rúmlega 50 stuttmyndir og fjölmörg verðlaun, komst hann inn í leikstjórnarnám í Leiklistarstofnuninni (Dramatiska Institutets regiutbildning).

Samstarfið við Memfis hófst með kvikmyndinn Svalir strákar (Coola killar) og síðan fylgdi Jalla! Jalla! sem varð vinsæl bæði hjá almenningi og gagnrýnendum. Jalla!. Eftir henni gerði Josef Kopps, sem átti álíka velgengni að fagna hjá áhorfendum og Jall! Jalla!. Báðar myndirnar hafa verið seldar til rúmlega 20 landa.

Framleiðandi: Anna Anthony

Fæddist árið 1971. Fyrir tíu árum síðan hóf Anna Anthony störf hjá Memfis Film, meðal annars sem aðstoðarmaður við upptökur á Breaking the Waves eftir Lars von Trier og sem meðframleiðandi á kvikmyndum Lukas Moodyssons. Hún hitti Josef Fares árið 1999.

„Það var Lukas sem benti á hann. Ég hringdi í hann og hann kom og sýndi stuttmyndirnar sínar. Ég var hrifin af þeim. Það gerðist mikið í þeim, þær voru tæknilega góðar og mjög skemmtilegar".

Anna Anthony og Memfis Film ákvaðu að styrkja kvikmyndina Svala stráka með tækjabúnaði og fjármunum. Síðan þá hefur Anna framleitt Jalla! Jalla! og Kopps eftir Josef Fares og nú síðast Zozo.