Nordjobb
Ljósmyndari
Nordjobb
Nordjobb er atvinnumiðlun sem útvegar ungu fólki á aldrinum 18 til 30 ára á Norðurlöndum tímabundna vinnu. Nordjobb útvegar ekki aðeins vinnu heldur einnig húsnæði og menningar- og frítímadagskrá. Í gegnum Nordjobb fær ungt fólk að kynnast því hvernig er að búa í öðru norrænu landi, kynna sér norræna menningu og hitta annað fólk í sömu stöðu og mynda vináttu við fólk frá öllum Norðurlöndum.
Upplýsingar
Dagsetning
01.01.1985 - 31.12.2030
Markmiðið er að auka hreyfanleika á vinnumarkaði Norðurlandanna og auka þekkingu á norrænum tungumálum og menningu. Frá 1985 hefur Nordjobb gert yfir 30 þúsund ungmennum kleift að kynnast öðru norrænu landi.
Með þátttöku í Nordjobb leggja bæði nordjobbarar og atvinnurekendur sitt af mörkum til hreyfanleika yfir landamæri Norðurlanda. Nordjobb er rekið af norrænu félögunum og að mestu fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni.