Þol, seigla og almannavarnir í norrænu samstarfi á sviði byggða- og skipulagsmála
Upplýsingar
Í maí 2025 samþykktu norrænu forsætisráðherrarnir sameiginlega yfirlýsingu um að efla viðnámsþrótt og tryggja skilvirkar almannavarnir. Norrænir ráðherrar byggðastefnu (MR-R) staðfesta mikilvægi þess að forgangsraða lykilsviðum í tengslum við byggða- og skipulagsmál til þess að dýpka enn frekar norrænt samstarf um þol, seiglu og almannavarnir.
Á undanförnum árum hafa norrænu samfélögin gengið í gegnum miklar efnahagslegar, umhverfislegar og samfélagslegar breytingar. Auk þess að kljást við heimsfaraldur hefur innrás Rússlands í Úkraínu gjörbreytt stöðu öryggismála í nánasta umhverfi okkar. Þessu til viðbótar þurfum við að takast á við náttúruhamfarir og aðrar alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga.
Þol, seigla og almannavarnir hafa orðið æ mikilvægari burðarstoðir þegar kemur að byggða- og skipulagi. Sköpum skiptir að stjórnvöld, ekki aðeins á landsvísu heldur einnig á svæðis- og sveitarstjórnarstigi, tryggi samfellu í starfsemi samfélagsins, skipuleggi viðbúnað og hafi getu til að sjá fyrir, takast á við og jafna sig eftir krísur. Geta atvinnulífsins og borgarasamfélagsins er auk þess lykilatriði í því að efla almannavarnir í tengslum við byggða- og skipulagsmál.
MR-R leggur áherslu á mikilvægi þess að greina og dýpka samstarf á þessum sviðum í því skyni að styðja við þá sameiginlegu framtíðarsýn að Norðurlönd verði samþættasta og sjálfbærasta svæði heims. Ráðherrarnir leggja jafnframt áherslu á að þetta starf sé lykilþáttur í innleiðingu norrænnar samstarfsáætlunar um byggðamál 2025–2030.
MR-R er einhuga um að dýpka norrænt samstarf á sviði byggða- og skipulagsmál með sérstakri áherslu á þol, seiglu og almannavarnir. Ráðherrarnir undirstrika mikilvægi þess að þessi sjónarhorn einkenni sameiginlegt starf og ítreka að aukin samhæfing milli landanna sé lykilatriði til að tryggja viðnámsþrótt samfélaganna og stuðla að sjálfbærri þróun um öll Norðurlönd.
Lykilsvið fyrir frekara samstarf
MR-R staðfestir sameiginlega skuldbindingu sína um að efla samstarf, þekkingarþróun og þróun samstarfsfyrirkomulags og góðra fyrirmynda á þessum lykilsviðum. Með samhæfingu aðgerða og miðlun á reynslu sín á milli geta norrænu löndin saman mætt framtíðaráskorunum með auknum viðnámsþrótti.
Þol, seigla og almannavarnir í byggðamálum
MR-R sér virði í því að norrænu löndin vinni sameiginlega, innan ramma byggðamála, að atriðum sem tengjast þoli, seiglu og almannavörnum.
Í tengslum við verkefni á vegum sænsku formennskunnar 2024 voru unnar tillögur að því hvernig efla megi þetta starf frekar. Á lands-, svæðis- og sveitarstjórnarstigi getur efling þols, seiglu og almannavarna stuðlað að því að styrkja bæði samkeppnishæfni og sjálfbærni á Norðurlöndum.
MR-R undirstrikar að mikilvægi andlegs viðnámsþróttar skuli haft að leiðarljósi í vinnunni í tengslum við þol, seiglu og almannavarnir.
Þol, seigla og almannavarnir í skipulagsmálum
Skipulagsvinna er grundvallarforsenda langtímamiðaðrar og sjálfbærrar landnýtingar. Í þeirri vinnu skiptir sköpum að huga bæði að krísum á friðartímum sem og aðstæðum vegna stríðshættu og í versta falli stríðs.
MR-R áréttar að aðstæður og áskoranir séu að mörgu leyti áþekkar í norrænu löndunum og að landnotkun og skipulagsvinna leiki lykilhlutverk í því að efla þrautseigju samfélaganna. Skipulagsvinna nær einnig til sameiginlegra atriða þvert á landamæri sem hafa mikla þýðingu fyrir framtíð svæðisins.
MR-R leggur áherslu á mikilvægi þess að taka þessi viðfangsefni föstum tökum og dýpka enn frekar samstarfið um hvernig skipulagsvinna getur eflt þol, seiglu og almannavarnir og hvernig þessi sjónarhorn verði höfð að leiðarljósi við löggjöf, stjórnsýslu og framkvæmd.
MR-R fagnar jafnframt samlegðaráhrifum með öðru norrænu-baltnesku og svæðisbundnu samstarfi sem snýr að þoli, seiglu og almannavörnum í tengslum við skipulagsmál.
Að nýta reynslu landamærasvæða og landamæranefnda til að þróa frjálsa för á krísutímum
Samstarfið yfir landamæri og frjáls för eru afar mikilvæg fyrir norrænt samstarf. Ráðherrarnir leggja áherslu á mikilvægi þess að dreginn verði lærdómur af fyrri veikleikum og að búa sig markvisst undir framtíðarkrísur.
Sem aðilar sem sérhæfa sig í samstarfi yfir landamæri búa landamærasvæðin og -nefndirnar yfir dýrmætri reynslu sem ber að að nýta.
MR-R undirstrikar mikilvægi þess að draga lærdóm af þessari reynslu og efla norræna samhæfingu til þess að tryggja frjálsa för, einnig á krísutímum. Samstarf yfir landamæri er ein af grunnstoðunum í norrænu samstarfi.
Ráðherrar byggða- og skipulagsmála staðfesta ábyrgð sína þegar kemur að því að efla enn frekar viðnámsþrótt Norðurlanda og krísuviðbúnað og lýsa því yfir að með samstarfi, sameinuð og sterk, byggjum við upp sjálfbærasta og samþættasta svæði heims til að mæta áskorunum næsta áratugar með þrautseigju.
Við, norrænir ráðherrar byggða- og skipulagsmála (MR-R) munum:
- Nýta tilmæli sem verða unnin í finnsku formennskuverkefni um andlega viðnámsþrótt sem hluta af almannavörnum á svæðis- og sveitarstjórnarstigi.
- Leggja áherslu á mikilvægi þess að efla í sameiningu getu í skipulagsmálum til að mæta framtíðarkrísum og styðja við dýpra samstarf um hvernig þessum þáttum er mætt í stjórnsýslu og löggjöf.
- Styðja við þróun frjálsrar farar á krísutímum og aðgerðir sem efla hana.
Þessi forgangsröðun er í samræmi við innleiðingu samstarfsáætlunar MR-R 2025–2030 og verður eftirfylgni tryggð af embættismannanefndinni um byggðamál (EK-R).