54. þing Norðurlandaráðs ungmenna
Upplýsingar
Riksdagen
Riksgatan 1,
100 12 Stockholm
Svíþjóð
Þing Norðurlandaráðs ungmenna er vettvangur fyrir unga Norðurlandabúa sem láta sig stjórnmál varða að hittast og ræða málefni norræns samstarfs og hafa áhrif á það fyrir komandi kynslóðir.
Atkvæðisbærir þátttakendur á þinginu eru fulltrúar landsbundinna ungliðahreyfinga stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á viðkomandi þjóðþingum.
Samtök sem hafa áheyrnaraðild í Norðurlandaráði ungmenna geta tekið þátt sem áheyrnarfulltrúar. Það eru óháð (ekki flokkspólitísk) samtök ungmenna sem vinna með málefni sem snerta ungt fólk á Norðurlöndum.
Á þinginu eru teknar til umfjöllunar ályktanir sem bæði aðildarsamtök og áheyrnarfulltrúar geta lagt fram. Stjórn Norðurlandaráðs ungmenna sendir þær ályktanir sem eru samþykktar áfram til Norðurlandaráðs.