Fyrirspurnatími á 71. Norðurlandaráðsþinginu
Upplýsingar
Sveriges riksdag
Förstakammarsalen
Riksplan
100 12 Stockholm
Svíþjóð
Í fyrirspurnatímanum gefst þátttakendum kostur á að leggja fram stuttar spurningar til norræna stjórnmálafólksins í Norðurlandaráði undir tveimur yfirskriftum, Stafræn væðing og stafræn hæfni - nýjar forsendur lýðræðis og Lýðræði og jafnrétti - frá sjónarhóli ungs fólks. Í fyrirspurnatímanum er tekið mið af ungu fólki og endurspeglast það í því hvaða samtökum er boðið. Þátttakandi skal við skráningu einnig skrá í hvort pallborðið viðkomandi hyggst beina spurningu. Með boðinu fylgja reglur og upplýsingar um þau málefni sem fyrirspurnatíminn snýst um. Spyrjendur eru hvattir til þess að hafa norrænan vinkil í spurningum sínum. Til að halda uppi hraða í fyrirspurnatímanum skulu hvorki spurningar né svör vera lengri en ein mínúta.
Allir flokkahópar hafa verið beðnir að leggja til fulltrúa í pallborð. Þegar pallborðið er skipað er tekið tillit til tengsla við stjórnmálaflokk, nefnd og þjóð. Leitast er við að gæta jafnvægis milli kynja.
Fundarstjóri: Mary Gestrin, yfirmaður samskiptasviðs Norrænu ráðherranefndarinnar
Upphafsorð: Forseti Norðurlandaráðs
Fyrirspurnatíminn er sendur út á netinu og túlkaður á finnsku og íslensku.
Pallborð 1 17.15-17.45
Stafræn væðing og stafræn hæfni - nýjar forsendur lýðræðis (Skoðanamótun samfélagsmiðla, stafrænir áhrifavaldar, tengsl stjórnmálamanna og kjósenda gegnum samfélagsmiðla, pólitísk þátttaka á netinu, mismunandi forsendur borgaranna í stafrænum heimi, falsfréttir o.s.frv.)
Pallborð: 5 þingmenn + 1 fulltrúi frá Norðurlandaráði æskunnar
Pallborð 2 17.45-18.15 Lýðræði og jafnrétti – frá sjónarhóli ungs fólks
(Pólitísk þátttaka meðal karla og kvenna, pólitísk áhrif ungs fólks og þátttaka, fjölmenningarmál, launamunur milli kvenna og karla, jafnrétti í skólum o.s.frv.)
Pallborð: 5 þingmenn + 1 fulltrúi frá Norðurlandaráði æskunnar
Lokaorð. Varaforseti Norðurlandaráðs
Taktu þátt í umræðunni á Twitter - #nrsession
»Det ligger et verdenshav av muligheter for #likestilling og kvinners fremgang i teknologi. Men den digitale verden… https://t.co/iAxhnThIyl
Nordiska rådet avslutar temasessionens första dag med exkursion till geotermiska kraftverket Hellisheidarvirkjun oc… https://t.co/1LrgE0TOPM
Orkuöryggi á Norðurlöndum er til umfjöllunar á þemaþingi Norðurlandaráðs sem nú fer fram í Hörpu. Í gær fóru þáttta… https://t.co/Y0gXyhwOSd