Norræn ráðstefna um stærðfræðinám fullorðinna

21.11.24 | Viðburður
NVL konferanse
Ljósmyndari
norden.org
Hvetjandi samtöl, fyrirlestrar og málstofur með norrænu sjónarhorni, ætluð kennurum fullorðinna í stærðfræði og verknámsgreinum sem fela í sér stærðfræði.

Upplýsingar

Dagsetning
21 - 22.11.2024
Staðsetning

Göteborgs universitet
Göteborg
Svíþjóð

Gerð
Ráðstefna

Kunnátta og hæfni í stærðfræði er forsenda virkrar þátttöku fullorðinna í samfélaginu og forsenda fyrir tengslum við vinnumarkað og aðgangi að menntun. Eftirfarandi málefni verða til umfjöllunar á ráðstefnunni:

  1. Nám fullorðinna á Norðurlöndum Hvernig er það og hverjar eru helstu áskoranirnar? Hvað geta löndin lært hvert af öðru?
  2. Stærðfræðiþekking: Hvaða þekking er nauðsynleg út frá mismunandi sjónarhornum og hvernig tengist hún verknámi og vinnumarkaði?
  3. Gervigreind og stærðfræðimenntun Hvaða áhrif mun gervigreindin hafa á stærðfræðikennslu til framtíðar?
  4. Viðurkenning menntunar, mat og kortlagning: Hvað er að gerast á þessum sviðum?
  5. Kennslufræði stærðfræði: Hver eru helstu sviðin í námi fullorðinna?

Tilgangur ráðstefnunnar:

  • Fræðast um helstu áskoranir varðandi stærðfræðinám fullorðinna
  • Fá tækifæri til að skiptast á reynslu með kennurum og skólastjórnendum frá hinum Norðurlöndunum
  • Fá innblástur og hugmyndir fyrir þína kennslu

Markhópur: Kennarar í stærðfræði og verknámsgreinum, skólastjórnendur, náms- og starfsráðgjafar, kennarar á sviði kennaramenntunar og önnur sem áhuga hafa á efni ráðstefnunnar.

Tungumál ráðstefnunnar: Enska og skandinavísku málin

Skráningarfrestur er til 8. nóvember. Hægt er að skrá sig síðar ef enn eru laus sæti.

Tengiliður: Fredrik Berglund, NVL Sverige fredrik.berglund@skolverket.se

Tengiliður