Húsnæðisstyrkir í Svíþjóð
Hvað eru hússnæðisstyrkir í Svíþjóð?
Húsnæðisstyrkur („bostadsbidrag“ og „bostadstillägg“) er fjárhagsaðstoð sem hægt er að fá til að geta greitt mánaðarlega húsaleigu eða húsnæðisgjald.
Húsnæðisstyrkur er einnig í boði fyrir fólk sem á sitt eigið hús, íbúð eða sem framleigir.
Hver eiga rétt á húsnæðisstyrk í Svíþjóð?
Ekki eiga allir rétt á húsnæðisstyrk í Svíþjóð, en það fer eftir aðstæðum hvers og eins. Veldu þær aðstæður sem eiga við um þig hér að neðan til að sjá hvort þú eigir rétt á húsnæðisstyrk í Svíþjóð.
Húsnæðisstyrkur fyrir barnafjölskyldur er fyrir fjölskyldur sem þurfa aðstoð til að greiða húsaleigu eða mánaðarleg gjöld fyrir íbúðarhúsnæði sitt.
Försäkringskassan sér um þessar greiðslur.
Húsnæðisstyrkur fyrir ungt fólk er fyrir ungmenni ungt fólk yngra en 29 ára sem þarf aðstoð til að greiða húsaleigu eða mánaðarleg gjöld fyrir íbúðarhúsnæði.
Försäkringskassan sér um þessar greiðslur.
Húsnæðisstyrkur fyrir fólk á veikinda- eða virknibótum er fjárhagsaðstoð umfram veikinda- eða virknibætur til að það geti staðið straum af húsnæðiskostnaði. Húsnæðisstyrkur er aðeins greiddur fólki sem er búsett í Svíþjóð. Þú getur sótt um styrkinn óháð því hvernig þú býrð og hvort þú býrð í eigin húsnæði. Þú getur einnig sótt um húsnæðisstyrk þrátt fyrir að þú hafir fjármagnstekjur. Upphæð húsnæðisstyrksins ræðst af húsnæðiskostnaði, tekjum, fjármagnstekjum og fjölskylduaðstæðum.
Försäkringskassan sér um þessar greiðslur.
Þú getur sótt um húsnæðisstyrk fyrir eldri borgara frá því ári sem þú verður 67 ára og tekur við fullum almennum lífeyri. Þú getur sótt um styrkinn óháð því hvernig þú býrð og hvort þú býrð í eigin húsnæði. Þú getur einnig sótt um húsnæðisstyrk þrátt fyrir að þú hafir fjármagnstekjur. Upphæð húsnæðisstyrksins ræðst af húsnæðiskostnaði, tekjum, fjármagnstekjum og fjölskylduaðstæðum.
Aðstæður margra breytast á efri árum og þess vegna getur verið skynsamlegt að kanna rétt sinn til húsnæðisstyrks. Það gæti verið tilefni til að sækja um húsnæðisstyrk þegar þú flytur frá eða missir maka, tekjur lækka til dæmis vegna þess að greiðslur á vinnutengdum lífeyri falla niður eða ef húsnæðiskostnaður hefur aukist eftir flutning.
Þegar þú sækir um húsnæðisstyrk fyrir eldri borgara kannar Pensionsmyndigheten einnig hvort þú eigir rétt á framfærslustyrk eldri borgara. Sá styrkur er til viðbótar til framfærslu ef lífeyristekjur þínar eru lágar.
Pensionsmyndigheten sér um þessar greiðslur.
Hver eru skilyrðin fyrir því að fá húsnæðisstyrk í Svíþjóð?
Þú þarft að búa og eiga lögheimili í Svíþjóð til að geta fengið húsnæðisstyrk. Reglur um upphæð styrksins eru breytilegar eftir því um hvaða greiðslur er að ræða en þær ráðast meðal annars af tekjum þínum, fjölda barna á heimilinu, húsnæðiskostnaði og stærð íbúðarhúsnæðisins.
Hvernig virka húsnæðisstyrkir í Svíþjóð?
Húsnæðisstyrkur (bostadsbidrag) er skattfrjáls fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera sem ætlað er að auðvelda fólki að greiða húsleigu eða húsnæðisgjald hvers mánaðar, en er ekki ætlað að standa straum af öllum kostnaðinum.
Hversu háan húsnæðisstyrk er hægt að fá í Svíþjóð?
Upphæð húsnæðisstyrk ræðst meðal annars af tekjum þínum, húsnæðiskostnaði og aðstæðum.
Hafðu samband við Försäkringskassan eða Pensionsmyndigheten til að fá upplýsingar um hve háum styrk þú átt rétt á.
Hvernig sæki ég um húsnæðisstyrk í Svíþjóð?
Þú getur sótt um húsnæðisstyrk („bostadsbidrag“) hjá Försäkringskassan. Ef þú færð veikinda- eða virknibætur áttu að sækja um „bostadstillägg“ hjá Försäkringskassan.
Ef þú ert orðin(n) 67 ára og færð fullan ellilífeyri geturðu sótt um húsnæðisstyrk hjá Pensionsmyndigheten.
Hvar sæki ég um húsnæðisstyrk ef ég bý í Svíþjóð en starfa í öðru landi?
Að meginreglunni til á einstaklingur aðild að almannatryggingum í því landi sem hann býr og starfar í. Hússnæðisstyrkur fer þó eftir heimilisfangi. Ef þú býrð í Svíþjóð og starfar í öðru norrænu landi gætir þú því átt rétt á þeim hluta húsnæðisstyrksins sem ætlað er að mæta húsnæðiskostnaði í Svíþjóð.
Húsnæðisstyrkur miðast við þörf þína og erlendar tekjur þínar hafa áhrif á það hvað þú getur fengið háan húsnæðisstyrk í Svíþjóð. Försäkringskassan og Pensionsmyndigheten afgreiða umsóknir um húsnæðisstyrk („bostadsbidrag“ og „bostadstillägg“), svo þú skalt hafa samband við þessar stofnanir til að senda inn umsókn.
Láttu Försäkringskassan eða Pensionsmyndigheten vita ef þú flytur eða byrjar að starfa í öðru landi og færð húsnæðisstyrk frá Svíþjóð.
Hvert er hægt að snúa sér með spurningar?
Þú getur hringt í þjónustuver Försäkringskassans í síma +46 (0)771-524 524 eða leitað svara á vefsíðu stofnunarinnar við spurningum um húsnæðisstyrk fyrir barnafjölskyldur, húsnæðisstyrk fyrir ungt fólk eða húsnæðisstyrk fyrir fólk á sjúkra- eða virknibótum.
Leitaðu upplýsinga hjá Pensionsmyndigheten ef spurningar vakna um húsnæðisstyrk fyrir ellilífeyrisþega. Pensionsmyndigheten heldur einnig upplýsingafundi um húsnæðisstyrki. Á fundunum eru gefnar upplýsingar um hvernig húsnæðisstyrkir virka og einnig gefst tækifæri til að spyrja spurninga.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Försäkringskassan og Pensionsmyndigheten.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.