Starfsleyfi og viðurkenning erlendrar menntunar á Álandseyjum
Ef þú ert með erlenda prófgráðu og vilt vinna á Álandseyjum er það oft vinnuveitandinn sem dæmir hvaða færni og kunnáttu erlenda prófgráðan veitir. Það sama á við ef þú ert með prófgráðu frá Álandseyjum og vilt vinna erlendis.
Til að starfa innan sumra lögverndaðra starfsgreina þarf viðurkenningu landsstjórnar Álandseyja eða til að sækja um. Innan tiltekinna starfsgreina eru einnig gerðar kröfur um framhaldsnám, löggildingu og öryggi til að geta sótt um starf.
Ef þú hefur áhuga á viðurkenningu starfsgreina vegna náms, þ.e. á hvaða forsendum þú getur sótt um nám á Álandseyjum með erlendri prófgráðu eða hvernig nám erlendis getur verið hluti af námi þínu á Álandseyjum skaltu fara á síðuna „Æðri menntun á Álandseyjum“.
Lögverndaðar starfsgreinar á Álandseyjum
Tiltekna menntun, próf eða réttindi þarf til að starfa innan starfsgreina sem eru verndaðar samkvæmt lögum. Einstaklingar með prófgráðu frá öðru landi þurfa að fá ákvörðun frá landsstjórn Álandseyja til að starfa innan þessara starfsgreina á Álandseyjum. Kröfur um hæfni í álenskum lögum eiga aðeins við um einstaklinga sem hafa innlenda fagmenntun. Þar sem Álandseyjar hafa ekki löggjafarvald gilda reglur Finnlands um hæfni. Ef landsbundnar hæfnikröfur gilda um starf er það vinnuveitandinn sem metur hvort þú uppfyllir þær þegar þú sækir um.
Í hlutunum hér að neðan má lesa um helstu lögvernduðu starfsgreinar á Álandseyjum. Þú finnur nánari upplýsingar um lögverndaðar starfsgreinar og viðurkenningu fagmenntunar á vefsíðum landsstjórnar Álandseyja. Nánari upplýsingar lögverndaðar starfsgreinar í Finnlandi eru á síðunni „Starfsleyfi og viðurkenning erlendra prófgráða í Finnlandi“.
Viðurkenning erlendra prófgráða á Álandseyjum
Ef þú ert með prófgráðu frá öðru landi gætir þú þurft að fá ákvörðun um viðurkenningu hennar til að geta starfað á Álandseyjum. Í flestum tilfellum er það vinnuveitandinn sem dæmir um hvaða kröfum og kunnáttu erlenda prófgráðan samsvarar.
Ef þú ert með erlenda háskólamenntun gætir þú þurft að sækja um prófgráðan verði metin jafngild samsvarandi menntun í Finnlandi.Ef þú sækir um starf á Álandseyjum sem krefst háskólaprófs samkvæmt lögum getur þú sótt um jafngildingu háskólaprófs þíns.
Lestu meira um hvernig þú sækir um viðurkenningu fagmenntunar og jafngildingu háskólanáms á vefsíðu landsstjórnar Álandseyja.
Reglur um einstök starfssvið
Á sumum starfssviðum hefur verið gert samkomulag um sérstakar reglur. Þetta geta til dæmis verið kröfur um framhaldsnám, löggildingu og öryggi. Vinnuöryggiskorts, hreinlætispassi og framreiðslupassi eru dæmi um kröfur sem gilda um einstök starfssvið.
Flest námskeið og próf um starfstengdar kröfur eru haldin í verkmenntaskólanum á Álandseyjum. Í hlutunum hér að neðan má lesa um helstu reglur sem gilda um einstök starfssvið. Á vefsíðu verkmenntaskólans á Álandseyjum um námskeið og menntun fyrir atvinnulífið er listi yfir flesta þá starfstengdu menntun sem er í boði á Álandseyjum
Til að starfa á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu á Álandseyjum þarf leyfi sem veitt er af leyfis- og eftirlitsstofnun félags- og heilbrigðiþjónustunnar, Valvira. Umsóknarferlið er mismunandi eftir því hvort þú laukst námi í Finnlandi eða á Álandseyjum, í aðildarríki Evrópusambandsins (ESB) eða Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eða utan ESB eða EES.
Finna má nánari upplýsingar um leyfisveitingar á vefsíðu Valvira um starfsréttindi á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu.
Í álenskum lögum eru gerðar kröfur um hæfni starfsfólk í leikskólum, grunnskólum og á frístundaheimilum. Kröfur um hæfni eiga aðeins beint við um einstaklinga sem hafa innlenda fagmenntun. Í slíkum tilfellum er það vinnuveitandinn sem metur hvort hæfnikröfur hafi verið uppfylltar.
Fyrir einstaklinga með erlenda fagmenntun gilda lög um viðurkenningu fagmenntunar eða lög um jafngildi háskólanáms við mat á lögbundnum starfsgreinum á Álandseyjum.
Samkvæmt lögum Álandseyja þurfa atvinnubílstjórar á Álandseyjum að gangast undir stöðuga þjálfun til að viðhalda hæfni sinni til atvinnuaksturs. Einnig þurfa allir bílstjórar vörubifreiða, rútubílstjórar og strætisvagnabílstjórar að búa yfir grunnfærni. Þegar þeir hafa lokið grunnmenntun og staðist próf fá þeir staðfestingu á færni. Staðfesting á færni gildir í fimm ár og er gefin út af verkmenntaskólanum á Álandseyjum (Ålands yrkesgymnasium).
Verkmenntaskólinn á Álandseyjum heldur úti ítarlegri vefsíðu um atvinnubílstjóranám þar sem finna má nánari upplýsingar. Á síðunni eru meðal annars gefnar upplýsingar um staðfestingu lyftararéttinda, ADR-reglur og fleira.
Áfengispassinn (framreiðslupassinn) sýnir fram á þekkingu á áfengislögum. Framreiðslupassa þarf til að starfa sem stjórnandi á framreiðslustað. Prófið fyrir áfengispassann er haldið af verkmenntaskólanum á Álandseyjum.
Áfengislöggjöf Finnlands gildir á Álandseyjum, með vissum undantekningum þó. Einstaklingar sem standast áfengispassaprófið á Álandseyjum geta starfað á Finnlandi og öfugt, en þurfa að vera meðvitaðir um hvernig reglurnar eru frábrugðnar.
Lesa má nánar um áfengispassann og aðrar tengdar upplýsingar á vefsvæði umhverfis- og heilsuverndarstofnun Álandseyja.
Einstaklingar sem meðhöndla matvæli á veitingastöðum eða kaffihúsum þurfa að geta framvísað staðfestingu á þekkingu á hreinlæti matvæla, svonefndum hreinlætispassa. Hreinlætispassi er veittur einstaklingum sem hafa staðist hreinlætispróf. Prófið er haldið af verkmenntaskólanum á Álandseyjum.
Lesa má nánar um hreinlætispassann á vefsvæði umhverfis- og heilsuverndarstofnun Álandseyja.
Nánari upplýsingar
Á vefsíðum Info Norden er að finna upplýsingar um starfsleyfi og viðurkenningu erlendra prófgráða annars staðar á Norðurlöndum og þær stofnanir sem leita skal til vegna spurninga.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.