Styrkur vegna hjálpartækja í Danmörku

Blind mand med førerhund og stok på banegård i Danmark

Blind mand med førerhund og stok på banegård i Danmark

Photographer
Yadid Levy/norden.org
Hér er hægt að lesa um möguleika á styrk vegna hjálpartækja búi maður við langvarandi þörf fyrir þau. Það getur til dæmis verið vegna fötlunar.

Ef þú dvelst löglega í Danmörku kanntu að eiga rétt á styrk vegna hjálpartækja. Það er sveitarfélagið sem tekur ákvörðun um styrk vegna hjálpartækja.

Hjálpartæki fyrir daglegt líf

Ef þú eða barnið þitt er með líkamlega eða andlega fötlun sem hjálpartæki geta auðveldað geturðu leitað til sveitarfélagsins eftir hjálpartæki eða styrk til að kaupa það.

Sveitarfélagið getur veitt styrki vegna hjálpartækja, sérstakra vara og breytinga eða skipta á húsnæði ef þú býrð við varanlega líkamlega eða andlega fötlun. Markmiðið er að þú getir lifað eins eðlilegu og sjálfstæðu lífi og hægt er þrátt fyrir fötlunina.

Ástæða fötlunarinnar skiptir ekki máli. Hún getur verið meðfædd eða tilkomin vegna veikinda eða slyss. Greiningin hefur ekki úrslitaáhrif heldur áhrifin sem fötlunin hefur.

Sveitarfélagið skal veita styrk til hjálpartækis ef hjálpartækið getur að verulegu leyti:

  • dregið úr varanlegum áhrifum fötlunarinnar
  • auðveldað þér daglegt líf á heimilinu
  • talist nauðsynlegt við vinnu þína

Hjálpartæki geta verið tæknileg á borð við:

  • gönguhjálpartæki
  • hjólastóla
  • sérútbúin rúm
  • minni hjálpartæki fyrir í eldhús eða baðherbergi

Einng geta þetta verið hjálpartæki sem einstaklingur ber á sér, svo sem:

  • stuðningsvesti
  • gervihandleggir eða -fætur
  • gervibrjóst
  • hárkolla (ef um varanlegan hármissi er að ræða)
  • stómahjálpartæki
  • bæklunarskór eða innlegg
  • heyrnartæki
  • sérstakur fatnaður
  • sjónhjálpartæki

Þegar sum hjálpartæki eru veitt, til dæmis bæklunarskór, þarf að greiða fyrir þau.

Sækja þarf um hjá sveitarfélaginu áður en keypt er og hægt er að fá styrk fyrir því hjálpartæki sem best á við og er ódýrast. Óski maður eftir dýrara hjálpartæki þarf viðkomandi að greiða aukakostnað.

Það kostar ekki neitt að fá lánuð hjálpartæki hjá sveitarfélaginu og fjárhagur þinn hefur ekki áhrif á það hvort þú getir fengið styrk eða hve mikið þú getur fengið. Styrkurinn er skattfrjáls.

Nánari upplýsingar veitir sveitarfélagið. Sjá tengil neðst.

Hjálpartæki vegna starfs eða atvinnuúrræðis

Ef þú ert með fötlun sem hindrar þig í tengslum við starf þitt, nám eða úrræði í samræmi við lög um virka aðlögun að vinnumarkaði geturðu fengið hjálpartæki. Styrkurinn getur falist í láni á tækjum eða fjárhagsaðstoð.

Hjálpartæki geta verið:

  • vinnutæki (til dæmis sérútbúinn sími eða stóll)
  • minniháttar aðstaða á vinnustað (til dæmis en rampur)
  • fræðsluefni (til dæmis hjálparefni fyrir tölvubúnað fyrir lesblinda)

Skilyrðin eru m.a. að:

  • hjálpartækið hafi úrslitaþýðingu um hvort þú getir tekið þátt í úrræðinu, haldið starfi eða fengið starf eða unnið sjálfstætt, og/eða að hjálpartækið vegi upp fötlun þína í starfi,
  • hjálpartækið sé alla jafna ekki að finna á vinnustaðnum eða menntastofnuninni, og að
  • kostnaðurinn sé meiri en sá sem vinnuveitandanum e[a menntastofnuninni ber að standa straum af.

Nánari upplýsingar veitir atvinnumiðstöðin í sveitarfélaginu þínu. Sjá tengil neðst.

Heilsufarsbætur fyrir lífeyrisþega

Lífeyrisþegar geta sótt um hefðbundnar eða auknar heilsufarsbætur hjá sveitarfélaginu. Hefðbundnar heilsufarsbætur ná yfir lyfseðilsskyld lyf, tannlæknakostnað, heyrnartæki, sjúkraþjálfun, fótameðferð, sálfræðiaðstoð og meðferð hjá hnykkjara. Auknar heilsufarsbætur ná yfir gervitennur, gleraugu og/eða fótalæknismeðferð. Upphæð bótanna ræðst af fjárhag þínum.

Nánari upplýsingar veitir sveitarfélagið. Sjá tengil neðst.

Hvað á að gera ef maður fær styrk í norrænu landi og flytur til Danmerkur?

Ef maður hefur fengið hjálpartækjastyrk í öðru norrænu landi áður en flutt er til Danmerkur þarf oft að sækja um styrk í Danmörku í stað landsins sem flutt er frá. Þú þarft því að hafa samband við stofnunina sem veitir þér hjálpartæki í landinu sem þú flytur frá og við það sveitarfélag í Danmörku sem þú hyggst flytja til áður en þú flytur. Sjá tengil neðst.

Hvar færðu svör við spurningum?

Ef frekari spurningar vakna má leita til sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar

Samband við yfirvöld
Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.

Info Norden er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Við gefum upplýsingar til fólks sem vill flytja, vinna, stunda nám, leita styrkjum eða hefja rekstur í öðru norrænu landi.
Leitaðu að skrifstofu Info Norden hérna