Formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni 2025
Réttindi barna og ungs fólks
Finnland og Álandseyjar munu leggja áherslu á réttindi, velferð og þátttöku barna og ungs fólks alls staðar á Norðurlöndum. Lögð er áhersla á að fylgja barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og tryggja þá vernd og umönnun sem börn þurfa. Þörf er á því að fylgja eftir verkefnum í þágu barna og ungmenna með kerfisbundnum hætti.
Viðbúnaður og samfélagsöryggi
Áætlunin undirstrikar aukið mikilvægi viðbúnaðarsamstarfs þvert á málefnasvið Norrænu ráðherranefndarinnar. Lögð er áhersla á ríkt fjölmiðlafrelsi ásamt fjölmiðlalæsi íbúa og traust réttarríki sem grundvöll þess að standast utanaðkomandi áhrif. Markmiðið er að stuðla að umfangsmiklum viðbúnaði við háska af ýmsum toga og fjölþáttaógnum, með þátttöku Álandseyja, Færeyja og Grænlands.
Aukin samkeppnishæfni
Í formennskuáætluninni er lögð áhersla á mikilvægi efnahagslegrar stöðu og samkeppnishæfni Norðurlanda fyrir þróun atvinnuvega og velferð samfélagsins. Norrænu löndin þurfa að efla nýsköpun og gera sig gildandi á alþjóðlegum mörkuðum með auknu samstarfi á sviði nýsköpunar og sjálfbærra lausna.
Lokaáfangi framtíðarsýnarinnar
Norræna ráðherranefndin vinnur að því að uppfylla framtíðarsýn norrænu forsætisráðherranna um að Norðurlönd verði samþættasta og sjálfbærasta svæði heims árið 2030. Sú vinna er að komast á lokastig. Samkvæmt formennskuáætluninni eru hinar þrjár stefnumarkandi áherslur, þ.e. græn, samkeppnishæf og sjálfbær Norðurlönd, áfram leiðarstefið í norrænu samstarfi.
Á formennskuárinu verður stigið mikilvægt skref í átt framtíðarsýnarinnar um Norðurlönd.