Formennskuáætlun Svía í Norðurlandaráði 2025

Ljósmyndari
Mostphotos
„Samstíga Norðurlönd – norrænt notagildi og samheldni á ólgutímum“ er yfirskrift formennskuáætlunar Svía í Norðurlandaráði 2025.

Norrænir borgarar eiga að hafa skýrt notagildi af norræna samstarfinu í sínu daglega lífi og finna fyrir norrænni samkennd. Þetta er meginþema í formennskuáætlun Svíþjóðar.

Í áætluninni er kastljósinu beint að mikilvægi samheldni á óvissutímum og daglegu norrænu notagildi fyrir borgara á Norðurlöndum. Þá er fjallað um mikilvægi þess að tengja vinnu Norðurlandaráðs betur við þjóðþingin.