Upplýsingar fyrir fjölmiðla um þemaþing Norðurlandaráðs í Ósló 2026
Skráning
Fréttamenn sem vilja fylgjast með þemaþinginu á staðnum verða að skrá sig á þingið.Gilds blaðamannaskírteinis er krafist vegna skráningar.
Sækja verður um skráningu með þessum tengli fyrir 14. apríl.
Innritun
Aðalinngangur Stórþingsins
Karl Johans gate 22
Allir þurfa að skrá sig inn með gildum skilríkjum og gildu blaðamannaskírteini. Af öryggisástæðum biðjum við þátttakendur að taka ekki með sér farangur í Stórþingið.
Alltaf skal bera aðgangskort með mynd í byggingum Stórþingsins.
Myndir frá þemaþinginu
Í myndasafninu okkar getur þú fundið myndir frá þemaþinginu sem nota má og deila að vild.
Beinar útsendingar
Umræðum í þingsal verður streymt.
Fjölmiðlar geta fylgst með beinum útsendingum á skandinavísku, íslensku, finnsku eða ensku á norden.org eða á skjá í sérstöku herbergi í sama húsi sem eingöngu er ætlað starfsfólki og fjölmiðlum.
Fjölmiðlafulltrúi
Ef þú vilt mæla þér mót við forseta Norðurlandaráðs eða annan þingmann Norðurlandaráðs, eða hefur aðrar spurningar, geturðu haft samband við:
Jakob Colville-Ebeling, samskiptaráðgjafa
+45 61 65 61 95