Forseti Norðurlandaráðs lýsir eindregnum stuðningi við rétt Grænlands til að ráða eigin framtíð
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg, norden.org
Í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í tengslum við Grænland hefur Heléne Björklund, forseti Norðurlandaráðs, ítrekað stuðning ráðsins við lýðræðið, réttarríkið og mannréttindi.
Lýðræði, réttarríkið og mannréttindi eru grundvallargildi Norðurlandaráðs. Grænland er mikilvægur hluti Norðurlanda og norræns samstarfs og Norðurlandaráð lýsir eindregnum stuðningi við yfirlýsingar frá leiðtogum ríkisstjórna Grænlands, Danmerkur og annarra Norðurlanda um að ákvörðunarvaldið um framtíð Grænlands skuli vera í höndum grænlensku þjóðarinnar.
Heléne Björklund, forseti Norðurlandaráðs
Norðurlandaráð er opinber vettvangur fyrir samstarf norrænu þjóðþinganna. Ráðið var stofnað árið 1952 og í því sitja 87 kjörnir fulltrúar frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Álandseyjum.