Grunnskólanemendur á Norðurlöndum fræðast um varúðarmerkt efni

24.11.15 | Fréttir
Forbind uddannelse og forskning
Ljósmyndari
Yadid Levy
Í nýju sameiginlegu námsefni fræðast grunnskólanemar um hættuna sem fylgir stíflueyði-, kveiki- og kalkleysiefnum og um það hvers vegna meðhöndla þarf kemísk efni með varúð.

Alvarlegir augnskaðar eða eitrun eru meðal þeirra slysa sem börn geta orðið fyrir ef þau komast í snertingu við eiturefni á heimilum. Þess vegna hafa norrænu löndin nú gefið út nýtt, sameiginlegt námsefni sem á að kenna nemendum í 2.-6. bekk að gæta sín ef þau sjá þessi kemísku efni í sínu daglega lífi. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni.

Gætið ykkar á varúðarmerktum efnum

Nýja námsefnið, „Huldar hættur á heimili Hönnu“, er vefur þar sem nemendur geta skoðað sig um í húsi þar sem eru ýmis algeng kemísk efni til heimanota og fræðst um hvað varúðarmerkingarnar á brúsunum þýða.

– Það er á ábyrgð foreldrana að kemísk efni á heimili séu geymd og meðhöndluð á réttan hátt, en með því að fræða nemendur um þau vonumst við til að draga úr hættunni á slysum. Og sömuleiðis getur verið að börnin segi foreldrum sínum frá því sem þau hafa lært, til dæmis um að klósetthreinsirinn og uppþvottaefnið eigi ekki að vera í neðsta skápnum þar sem litlibróðir nær til. Þannig getur öll fjölskyldan haft gagn af, segir Trine Thorup Andersen, líffræðingur á dönsku umhverfisstofnuninni (Miljøstyrelsen), sem er ein af þeim stofnunum sem standa að verkefninu.

Vefurinn „Huldar hættur á heimili Hönnu“ var gerður í samstarfi fimm landa:

Danmerkur (Miljøstyrelsen), Svíþjóðar (Kemikalieinspektionen), Noregs (Miljødirektoratet), Finnlands (Tukes) og Íslands (Umhverfisstofnun) með stuðningi frá Norrænu ráðherranefndinni. Námsefnið er til á fimm tungumálum á eftirfarandi slóðum:

 

Danmörk: hannashus.dk

Svíþjóð: hannashus.se

Noregur: hannashus.no

Finnland: hannantalo.fi  svensk.hannantalo.fi

Ísland: honnuhus.is

 

Um Huldar hættur á heimili Hönnu:

  • Námsefnið var gert í samstarfi milli Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs, Finnlands og Íslands.
  • Námsefnið er vefur þar sem börnin geta varið einni kennslustund í að fræðast um hvað mismunandi varúðarmerki á brúsum með kemískum efnum til heimilisnota þýða og hvers vegna mikilvægt er að meðhöndla og geyma þau á öruggan hátt.
  • Námsefnið er miðað við kennslu í náttúrufræði, en það er til á öllum norrænu tungumálunum auk ensku, þannig að einnig er hægt er að nota það í ólíkum fögum.
  • Norrænu ráðherranefndin veitti 250 þúsund danskra króna styrk til námsefnisgerðarinnar.