Forsætisráðherra Noregs setur norrænar umræður um viðbúnað á norska stórþinginu
At the Prime Ministers' press conference, Nordic Council Session 2023, Oslo
Staðan í öryggismálum í Evrópu hefur breyst á undanförnum árum. Stríð í næsta nágrenni við okkur, auknar fjölþáttaógnir, heimsfaraldur og raskanir í alþjóðlegum aðfangakeðjum hafa sett viðbúnðarmál og samfélagsöryggi á oddinn á Norðurlöndum.
Norðurlönd eru jafnframt mjög samþættt svæði þar sem vinnumarkaður, innviðir og aðfangakeðjur teygja sig yfir landamæri. Samstarf og frjáls för skipta því miklu máli í tengslum við vinnuna að viðbúnaðarmálum.
Fundardagana tvo hittast meðal annars fjórar fagnefndir Norðurlandaráðs, forsætisnefnd og flokkahóparnir fimm. Í aðalumræðum þemaþingsins, sem nefndar eru umræður um málefni líðandi stundar og fara fram 17. apríl, munu norrænir þingmenn ræða hvernig Norðurlönd geti eflt viðbúnað sinn gegn krísum. Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, mun hefja umræðurnar.
Hluti af formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja
Í formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja í Norðurlandaráði 2026 er almennt öryggi á Norðurlöndum efst á baugi og sett er fram skýr framtíðarsýn. Áætlunin byggir á heildstæðri nálgun á viðbúnaði þar sem hernaðarlegar, borgaralegar, efnahagslegar og félagslegar víddir eru nátengdar.
Jafnframt er lögð áhersla á meðal annars samgöngur, innviði, heilbrigðisöryggi og frjálsa för sem mikilvæg svið fyrir bæði afhendingaröryggi og krísustjórnun, auk þess sem þörfin fyrir aukna norræna samhæfingu á þessum sviðum er undirstrikuð.
Þingið er opið fjölmiðlum
Umræður á þemaþinginu um norrænan krísuviðbúnað eru opnar fjölmiðlum og fara fram í þingsal Stórþingsins kl. 8.45-11.15 þann 17. apríl. Yfirskrift umræðnanna er „Eru Norðurlönd búin undir áföll? Sveigjanlegt samstarf og frjáls för til grundvallar seiglu Norðurlanda“.
Blaðamenn sem vilja fylgjast með umræðunum geta sótt um skráningu hér:
Að umræðunum loknum verður haldinn stuttur blaðamannafundur með forsætisráðherra Noregs og forseta Norðurlandaráðs.
Fylgist með þemaþinginu á netinu
Umræðurnar á Stórþinginu verðar sendar út beint á norden.org þar sem hægt verður að fylgjast með skoðanaskiptum um hvernig Norðurlönd geta staðið styrkari saman þegar þau takast á við krísur.