Norðurlandaráð á fundi Kvennanefndar SÞ

19.03.26 | Fréttir
Nordisk råd CSW 2026
Ljósmyndari
Maren Sofie Glomnes/norden.org
Norðurlöndin verða að halda áfram að tala skýrri röddu fyrir jafnréttismálum og þrýsta á um framfarir. Þetta eru skilaboð sendinefndar Norðurlandaráðs á 70. fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW70).

Eva Biaudet og Kristine L. Solli sóttu fund Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York 9.–13. mars fyrir hönd Norðurlandaráðs.

Ráðstefnan er mikilvægasti vettvangur heims þegar kemur að vinnu að réttindum kvenna og jafnrétti og á þingmannafundi á vegum Norðurlandaráðs sameinuðust norrænir þingmenn um að styðja sameiginlega yfirlýsingu norrænu ríkisstjórnanna „Pushing for Progress – Towards gender equality and equal rights for LGBTI persons 2025–2027“.

Interparlamentarisk møte med nordiske parlamentarikere på CSW - Nordisk råd

Interparlamentarisk møte med nordiske parlamentarikere på CSW.

Ljósmyndari
Maren Sofie Glomnes/norden.org

Víða um heim þrengir í auknum mæli að jafnrétti, réttindum kvenna og réttindum LGBTI-fólks. Því leggja Norðurlöndin áherslu á nauðsyn þess að halda áfram að vinna að jafnrétti og verja grundvallarréttindi.

Á tímum þar sem afleiðingar stríðs og geopólitískrar spennu fara vaxandi og alþjóðlegar andréttindahreyfingar vinna gegn jafnrétti og réttindum kvenna standa norrænu þingmennirnir sem taka þátt í CSW staðfastir. Jafnrétti er ekki eitthvað sem við getum leyft okkur að setja til hliðar á erfiðum tímum. Það er forsenda fyrir öflugum samfélögum, viðnámsþrótti og traustu lýðræði, segir í yfirlýsingu sem þingmannafundurinn samþykkti.

Sendinefnd frá norrænu velferðarnefndinni tók þátt í fundum, hliðarviðburðum og samtölum við aðra þingmenn og ráðmenn, alþjóðleg samtök og aðila úr borgarasamfélaginu. Meðal þeirra málefna sem tekin voru fyrir voru konur í stríði og átökum, jafnrétti og loftslagsmál, ofbeldi gegn konum, makamorð og rétturinn til þungunarrofs.

Norræna velferðarnefndin vinnur að málum sem tengjast heilbrigðis-, félags- og jafnréttismálum. Nefndin beinir meðal annars sjónum sínum að réttindum kvenna, baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og öflugu norrænu samstarfi um velferðarmál.

Um norrænu velferðarnefndina