Lokakaflinn í starfsemi KreaNord

18.08.15 | Fréttir
Keramik
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Þýðingarmestu niðurstöður KreaNord-verkefnisins (2008–2015), sem ætlað er að stuðla að virðisauka í skapandi greinum á Norðurlöndum, eru á sviði stefnumótunar. Þetta er mat Kontigo, fyrirtækis sem sérhæfir sig í greiningu og stjórnun.

KreaNord hefur staðið yfir frá 2008 til 2015 og verið fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni, en við matsgerðina hefur Kontigo einkum beint sjónum að árunum 2013 og 2014. Hægt er að nálgast matið hér: Utvärdering av KreaNord: Nordiska ministerrådets initiativ för kulturella och kreativa näringar 2008–2015.

Kontigo leggur áherslu á að KreaNord hafi eflt stefnumótun, gert hana skilvirkari og skilgreint sameiginleg úrlausnarefni Norðurlanda í þverfaglegu samstarfi menningar- og atvinnulífs. Í skýrslunni er einnig tekið fram að þetta hafi ekki verið létt verk. 

„Að okkar mati hefur ekki verið skýrt hvaða ábyrgð Kreanord hefur borið og hvert umboð KreaNord hefur verið til að miðla tillögum til landanna og hrinda í framkvæmd. Æskilegt hefði verið að skýr áætlun hefði legið fyrir um það hvernig löndin hefðu átt að vinna með tillögurnar,“ segja höfundar skýrslunnar.

KreaNord hefur getið af sér greiningar, tölfræði og framkvæmdaáætlanir fyrir skapandi greinar á Norðurlöndum, en samkvæmt matinu hefur verkefnið aukið þekkingu og áhuga meðal ráðamanna og stutt við þróun stefnumótunar og framkvæmdaáætlana.

Í evrópsku samhengi er niðurstaða Kontigo sú að KreaNord sé einstakt dæmi um fjölþjóðlegt, þverfaglegt og stefnumótandi samstarf um skapandi greinar.

„Framkvæmdastjórn ESB, meðal annarra, hefur fundið innblástur í KreaNord, en að mati framkvæmdastjórnarinnar hafa Norðurlöndin rutt brautina með margvíslegum tilraunaverkefnum, sem síðan breiðast út og eru tekin til fyrirmyndar í öðrum Evrópulöndum.“ 

Valdar skýrslur frá KreaNord

Entreprenørskab og foretagsomhed i de kunstneriske uddannelser i Norden

Mapping of Nordic Creative and Cultural Industries: Financial Environment

Entreprenörskap i högre konstnärlig och kreativ utbildning i Norden

Nordic Version of the OECD Report “Intellectual Assets and Innovation The SME Dimension

Kreative erhverv i Norden