Norðurlöndin taka höndum saman um að hraða grænum og stafrænum umskiptum með stöðlum

27.05.26 | Fréttir
Människor som speglas i operahuset i Oslo
Ljósmyndari
Oliver Cole/Unsplash
Græn og stafræn umskipti krefjast nánara samstarfs yfir landamæri. Norðurlöndin taka nú höndum saman um að nýta staðla sem verkfæri til að breyta þekkingu í lausnir sem virka á öllum Norðurlöndunum, lausnir sem einnig gætu orðið stefnumarkandi á evrópskum og alþjóðlegum vettvangi.

Verkefnið, The Nordic Region Sets the Standard, nýtur stuðnings Norrænu ráðherranefndarinnar og leiðir saman norrænu staðlasamtökin í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Markmiðið er að efla norrænt samstarf og nýta staðla betur sem verkfæri fyrir nýsköpun, sjálfbærni og innleiðingu nýrra lausna. 

Staðlar eru öflugt verkfæri í samfélagsþróun. Þeir ýta undir nýsköpun og ryðja brautina fyrir nýja tækni, ekki síst í grænum umskiptum. Nánara norrænt samstarf mun styrkja samhæfingu og auka áhrif á öllu svæðinu.

Dan Koivulaakso, deildarstjóri yfir deild hagvaxtar og loftslagsmála hjá Norrænu ráðherranefndinni

Með verkefninu munu norrænu staðlasamtökin vinna saman að því að: 

  • efla notkun staðla á sviðum sem hafa stefnumótandi þýðingu fyrir Norðurlöndin, 
  • styðja við samþættingu staðlastarfs í þróun regluverks og í rannsóknum, þróun og nýsköpun, 
  • auka vitund um hvernig staðlar geta hjálpað fyrirtækjum og opinberum aðilum að innleiða nýjar kröfur og lausnir, 
  • byggja upp norræna hæfni og samstarf á framtíðarmiðuðum sviðum, 
  • móta sameiginlegar nálganir sem draga úr hindrunum og auðvelda þróun og útbreiðslu lausna yfir landamæri. 

Verkefnið beinist að lykilsviðum sem móta framtíðina, þar á meðal hringrásarhagkerfi, stafrænar lausnir og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Sérstök áhersla verður lögð á gervigreind, netöryggi og skammtatækni, auk þróunar í jarðefnageiranum. 

Með því að efla samstarf og byggja upp sameiginlegar nálganir mun verkefnið styðja við skilvirka innleiðingu nýrrar tækni, nýskapandi lausnir, sterkari virðiskeðjur yfir landamæri og betri skilyrði fyrir norræn fyrirtæki og opinbera aðila. Verkefnið mun einnig stuðla að aukinni hæfni og þátttöku í staðlastarfi á Norðurlöndum, meðal annars meðal sérfræðinga og ungs fagfólks á nýjum sviðum. 

Með nánara samstarfi á Norðurlöndum getum við einnig aukið gildi og áhrif staðla og styrkt hlutverk okkar við mótun staðla í Evrópu og á heimsvísu. 

Um verkefnið

The Nordic Region Sets the Standard er norrænt samstarfsverkefni um staðlastarf sem nýtur stuðnings Norrænu ráðherranefndarinnar. Verkefnið leiðir saman landsstaðlasamtök í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. 

Markmiðið er að efla norrænt samstarf og stuðla að stefnumiðaðri notkun staðla til að styðja við sjálfbærni, samkeppnishæfni og græn og stafræn umskipti.