Norðurlandaráð áfrýjar vegna einkaleyfis á „norræna líkaninu“

28.01.15 | Fréttir
Höskuldur Þórhallsson
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org
Norðurlandaráð hefur áfrýjað til hæstaréttar Svíþjóðar í máli sem varðar einkaleyfi sænska Jafnaðarmannaflokksins á orðasambandinu „norræna líkanið“ á sænsku („Den nordiska modellen“). „Norræna líkanið tilheyrir öllum Norðurlandabúum,“ segir Höskuldur Þórhallsson, forseti Norðurlandaráðs.

Á fundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs á Álandseyjum var samþykkt einróma að áfrýja málinu til hæstaréttar.

„Undanfarinn áratug hefur orðasambandið „norræna líkanið“ verið notað í margs konar samhengi í opinberu norrænu samstarfi, óháð því hvar fólk stendur í stjórnmálum og við viljum að svo verði áfram,“ segir Höskuldur Þórhallsson.

Aðdragandi málsins er að árið 2012 sótti sænski Jafnaðarmannaflokkurinn um leyfi Einkaleyfastofu þar í landi til að skrá Norræna líkanið sem vörumerki, og var umsóknin samþykkt. Þegar Einkaleyfastofa vísaði á bug andmælum sem bárust úr opinberu norrænu samstarfi ákvað Norðurlandaráð að áfrýja til sérstaks dómstóls í skráningar- og einkaleyfamálum. Sá dómstóll vísaði málinu frá og því leitar ráðið nú til hæstaréttar.

Í áfrýjun sinni bendir Norðurlandaráð á að hugtakið „norræna líkanið“sé pólitísk sameign almennings á Norðurlöndum, sem ekki megi líta svo á að tilheyri sænsku málsvæði sérstaklega eða tiltekinni stjórnmálastefnu. Norræna líkanið sé hluti af menningarlegum og pólitískum arfi allra Norðurlandabúa. Íumsókn Svíanna segir hinsvegar að hugtakið hafi löngum tengst verkalýðshreyfingunni.

„Norræna líkanið er hugtak sem mörg lönd samsama sig með og nota reglulega. Til dæmis kemur árlega út fjöldi rita á vegum opinbers norræns samstarfs þar sem hugtakið kemur fyrir,“ segir forseti Norðurlandaráðs. 

Norðurlandaráð er vettvangur þingmanna í opinberu norrænu samstarfi. Norðurlandaráð var stofnað 1952 og þingar að jafnaði tvisvar á ári. Á þingum ráðsins ræða þingmenn norrænu ríkjanna og sjálfstjórnarsvæðanna málefni líðandi stundar sem varða norrænt samstarf.