Nýtt verkefni styrkir viðbúnað samfélaga á norðurslóðum
Samfélög víðs vegar um norðurslóðir standa í auknum mæli frammi fyrir samþættum áskorunum vegna loftslagsbreytinga, skorts á innviðum og takmarkaðs neyðarviðbúnaðar. Til að takast á við þessar áskoranir hefur Samstarfsvettvangur bæjarstjóra á norðurslóðum (Arctic Mayors’ Forum) hleypt af stokkunum verkefninu „Aukin tengsl á norðurslóðum“ sem miðar að því að styrkja seiglu samfélaga á norðlægum svæðum með því að tengja saman leiðtoga sveitarfélaga, samtök frumbyggja, vísindafólk og staðbundna samstarfsaðila og skapa vettvang fyrir samvinnu og sameiginlegt nám.
„Samfélög á norðurslóðum eru þegar að takast á við skógarelda, flóð og aðrar krísur en með því að vinna saman getum við þróað sameiginlegar starfsvenjur og tryggt að enginn þurfi að finna upp hjólið aftur,“ segir Patti Bruns, framkvæmdastjóri Samstarfsvettvangs bæjarstjóra á norðurslóðum.
Verkefnið stendur til mars 2027 undir forystu Samstarfsvettvangs bæjarstjóra á norðurslóðum í samvinnu við aðila á borð við Nordregio, North American and Arctic Defence and Security Network (NAADSN), KRK Inua og Harvard Arctic Initiative, og er fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni.
„Samfélagsöryggi er efst á baugi hjá öllum norrænu ríkisstjórnunum, sérstaklega á þessum óvissutímum. Öflug samfélög eru ekki byggð af neinu einu ríki. Norræna ráðherranefndin knýr fram sameiginlegar pólitískar áherslur og aukið norrænt virði í vinnu landanna að viðbúnaðarmálum. Það er forgangsmál,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar Hún leggur áherslu á nálgun sem setur fólk í forgrunn:
Með því að bæta við sjónarhorni samstarfs norðurslóða í þetta starf munu sveitarfélög á norðurslóðum, bæði á Norðurlöndum og í Norður-Ameríku, læra hvert af öðru og verða betur í stakk búin til að takast á við hugsanlegar krísur í heimi sem tekur stöðugum breytingum.“
Verkefnið tvinnar saman staðbundna reynslu og vísindalega innsýn til að bæta bæði stafræn og félagsleg tengsl og stuðlar að skipulagsferlum án aðgreiningar. Meginmarkmiðið með því er að hjálpa samfélögum að sjá fyrir og bregðast við krísum, allt frá skógareldum og flóðum til þiðnunar sífrera, með því að læra hvert af öðru í stað þess að vinna hvert fyrir sig. Áhersla er lögð á valdeflingu samfélaga: leiðtogar sveitarfélaga, fulltrúar frumbyggja, ungt fólk og viðbragðsaðilar munu taka þátt í vinnustofum, stafrænum samskiptum og skipulagsvinnu til að skapa saman hagnýtar viðbúnaðaráætlanir. Afurðir verkefnisins munu meðal annars fela í sér stefnuskjöl, verkfærakistu fyrir viðnámsþrótt og staðfestar aðferðir fyrir staðbundið viðbúnaðarskipulag, allt hannað til beinnar notkunar fyrir samfélög.
Frá árinu 1996 hefur norræna átlunin um málefni norðuslóða styrkt samstarf, viðnámsþrótt og borgaralegt samfélag á norðurslóðum og hjálpað samfélögum að aðlagast og dafna á tímum örra umhverfis og félagslegra breytinga. Með því að forgangsraða samvinnu og þekkingarmiðlun á milli samfélaga endurspeglar þetta nýja framtak langvarandi skuldbindingu Norrænu ráðherranefndarinnar við sjálfbært samstarf fólks á norðurslóðum.