Norrænu ríkisstjórnirnar setja á fót nefnd til endurskoðunar á Helsingforssamningnum

16.03.26 | Fréttir
Nordiske samarbejdsministre ved møde i København, februar 2026
Ljósmyndari
norden.org

Ráðherrarnir á fundi sínum í Kaupmannahöfn þann 18. febrúar 2026.

Nefndin skal vinna tillögu að nýjum samningstexta sem gerir kleift jafngilda þátttöku Færeyja, Grænlands og Álandseyja í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni.

Greinin var uppfærð þann 16. apríl með nöfnum nefndarmanna.

Samstarfsráðherrar Norðurlanda ákváðu í dag, 16. mars 2026, að skipa nefnd til endurskoðunar á Helsingforssamningnum.

Helsingforssamningurinn skilgreinir rammann fyrir formlegt norrænt samstarf í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni.

Nefndin skal vinna tillögu að skýrum breytingum á texta Helsingforssamningsins og öðrum aðgerðum sem geta tryggt jafngilda þátttöku Færeyja, Grænlands og Álandseyja í norrænu samstarfi.

Erindisbréf nefndarinnar

Nefndin samanstendur af átta fulltrúum sem hafa umboð til að tala fyrir hönd ríkisstjórna Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Grænlands, Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Álandseyja. Danmörk fer með formennsku í nefndinni í krafti sameiginlegrar formennsku sinnar og Færeyja í Norrænu ráðherranefndinni árið 2026.

 

Nefndarmenn eru: 

  • Vibeke Pasternak Jørgensen, skrifstofustjóri lagasviðs í utanríkisráðuneyti Danmerkur
  • Maria Guseff, skrifstofustjóri ESB- og samningaréttar í lagadeild utanríkisráðuneytis Finnlands
  • Elisabeth F. Rasmussen, forstöðumaður skrifstofu Færeyja gagnvart ESB, Færeyjum
  • Maria Birkedal Olsen, lögfræðingur í forsætisráðuneyti Grænlands
  • Anna Pála Sverrisdóttir, deildarstjóri laga- og stjórnsýsluskrifstofu í utanríkisráðuneyti Íslands
  • Dr. Jørgen Sørgard Skjold, ráðgjafi í þjóðarétti í utanríkisráðuneyti Noregs
  • Carina Mårtensson, fulltrúi Svíþjóðar í norrænu samstarfsnefndinni, yfirráðgjafi í utanríkisráðuneyti Svíþjóðar
  • Niclas Slotte, fulltrúi Álandseyja í norrænu samstarfsnefndinni, deildarstjóri og yfirlögfræðingur í landsstjórnÁlandseyja

Helsingforssamningurinn

Helsingforssamningurinn var undirritaður árið 1962 og er lagalegur grundvöllur norræns samstarfs í Norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði. Samningnum var síðast breytt árið 1996 í tengslum við aðild Finnlands og Svíþjóðar að Evrópusambandinu. Dagurinn sem samningurinn var undirritaður, 23. mars, er haldinn hátíðlegur sem Dagur Norðurlanda.