Norrænt samstarf um varnarmál víkkað út

10.04.15 | Fréttir
Bertel Haarder
Ljósmyndari
Johannes Jansson
Bertel Haarder (V), formaður landsdeildar Danmerkur í Norðurlandaráði, fagnar nýju samkomulagi Norðurlandanna um að efla varnarmálasamstarf sín á milli.

Í dag kynntu norrænu ríkin fimm nýjan samstarfssamning á sviði varnarmála. Tildrög nýja samningsins má meðal annars rekja til þess yfirgangs sem Rússar hafa sýnt á grannsvæðum Norðurlanda. Samstarfssamningurinn var kynntur í norska dagblaðinu Aftenposten, í sameiginlegri yfirlýsingu varnarmálaráðherra Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands auk utanríkiráðherra Íslands.

„Ég vona innilega að verði af þessu samstarfi, og að áhersla verði lögð á að tryggja öryggi Eystrasaltslandanna,“ segir Bertel Haarder, formaður dönsku landsdeildarinnar.

Haarder minnir á þann árangur sem hlotist hefur af NORDEFCO (Nordic Defence Cooperation), varnarmálasamstarfi Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar, og telur að það samstarf beri nú að útvíkka.

Tillaga um varnar- og öryggismálanefnd

Bertel Haarder hefur lengi talað fyrir því að forsætisnefnd Norðurlandaráðs ræði þann möguleika að beina tilmælum til forsætisráðherra Norðurlandanna um að stofna norræna varnar- og öryggismálanefnd. Í framhaldi af ræðu Thorvalds Stoltenberg (Ap), fyrrum utanríkis- og varnarmálaráðherra Noregs, á þingi Norðurlandaráðs 2014 ritaði Bertel Haarder í lok sama árs bréf til Helle Thorning-Schmidt (S), forsætisráðherra Danmerkur, þar sem hann hvatti ráðherrann til að eiga frumkvæði að stofnun varnar- og öryggismálanefndar á formennskuári Danmerkur í Norðurlandaráði, 2015.

„Tillaga Stoltenbergs á þinginu 2014 var frábær og í ljósi þessarar yfirlýsingar ráðherranna finnst mér borðleggjandi að þeir taki tillöguna upp nú,“ segir Bertel Haarder.

Áhersla á Eystrasaltslöndin

Formaður dönsku landsdeildarinnar er afar ánægður með að norrænu ráðherrarnir hafi tekið höndum saman og gefið út opinbera yfirlýsingu um vilja sinn til samstarfs, sem myndi meðal annars fela í sér sameiginlegar heræfingar, aukna samvinnu á sviði iðnaðarframleiðslu og samstarf um gagnasöfnun og -úrvinnslu á öllum sviðum, ekki síst hvað snertir netgögn.

„Ég er ánægður með að ráðherrarnir ræði saman og skrifi yfirlýsingu af þessu tagi í sameiningu. Mestu skiptir þó að samstarfið verði að veruleika, og að Eystrasaltslöndin verði þar innanborðs. Eystrasaltslöndin eiga aðild að NATÓ en það eiga Finnland og Svíþjóð ekki og til þess þarf að taka sérstakt tillit,“ segir Bertel Haarder.

„Ég vil einnig benda á mikilvægi samstarfs um málefni norðurslóða. Samfara því að ísinn hverfur munu siglingar færast í aukana, sem kallar á aukna áherslu á viðbúnað og varnar- og öryggismál. Við eigum þegar í samstarfi um loftrýmiseftirlit yfir Íslandi, sem hægt er að byggja á. Síðast en ekki síst er nauðsynlegt að gæta vel að netöryggi. Skemmst er að minnast þess þegar hryðjuverkasamtökin ISIS brutust inn í tölvukerfi franskrar sjónvarpsstöðvar og trufluðu útsendingu,“ segir Bertel Haarder, formaður dönsku landsdeildarinnar í Norðurlandaráði, að lokum.