Norrænu vinnumarkaðurinn í sviðsljósinu á fundum Norðurlandaráðs í janúar
Anne Berner, samstarfsráðherra Finnlands, tekur þátt í pólitíska umræðufundinum sem haldinn verður 25. janúar og þar sem meðal annars verða til umfjöllunar tilmæli Norðurlandaráðs og um það hvernig börn sem brotið er á verða sjúklingar á fullorðinsárum.
Liðin eru sextíu ár síðan Finnland fékk aðild að Norðurlandaráði. Haldið verður upp á það með sameiginlegum fundi þar sem þingmenn ræða mikilvægi sögunnar fyrir norrænt samstarf séð í sögulegu ljósi og til framtíðar. Rætt verður hvort Norðurlönd án landamæra verði enn til eftir sextíu ár.
Árið 2015 fól Norræna ráðherranefndin Poul Nielson, fyrrum ráðherra í dönsku ríkisstjórninni og fyrrum meðlimi framkvæmdastjórnar ESB, að gera ítarlega úttekt á norræna vinnumarkaðsgeiranum. Hann ætlar að koma til Helsinki og taka þátt í sameiginlega fundinum sem ber yfirskriftina „Vinnumarkaður á Norðurlöndum án landamæra“ og sem haldinn verður þriðjudaginn 26. janúar. Jens Kristiansen, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla, setur fundinn.
Á janúarfundunum verður jafnframt formennskuáætlun Dana í Norðurlandaráði kynnt fyrir nýju fagnefndunum fjórum – norrænu sjálfbærninefndinni, norrænu þekkingar- og menningarnefndinni, norrænu velferðarnefndinni og norrænu hagvaxtar- og þróunarnefndinni. Henrik Dam Kristensen verður forseti Norðurlandaráðs í formennskutíð Dana og Mikkel Dencker varaforseti.