Samstarf um öryggismál
Carl Haglund, varnarmálaráðherra Finnlands, getur nefnt margt sem tókst vel á liðnu ári en undir formennsku Finnlands tókst að móta framtíðarsýn fyrir norrænt varnarmálasamstarf, NORDEFCO, þar sem stuðst er við pólitískar áherslur til lengri tíma.
„Sú framtíðarsýn ber vitni um vilja Norðurlandaþjóðanna til að dýpka samstarfið og sett eru fram skýr markmið fram til ársins 2020. Við höfum fengið gagnlegt tæki sem hingað til hefur vantað í skipulagningu en framtíðarsýnin auðveldar einnig varnarmálayfirvöldum landanna að móta pólitíska stefnu um stjórnun til lengri tíma litið.“
Carl Haglund segir Norðurlandaráð hafa kynnt til sögunnar nýja vídd í pólitískri stjórnun og á þar við tengingu þingmanna við það samstarf sem fram fer á vettvangi NORDEFCO.
„Fyrir vikið höfum við þurft að velta fyrir okkur hvort almenningur sé hlynntur samstarfinu og eins verðum við að hafa í huga að gagnsæi á að vera eðlilegur þáttur í öllum norrænum samstarfsverkefnum. Þessi þróun var hvatning fyrir mig sem formann til að tryggja að þingfulltrúar í mínu heimalandi gætu fylgst með formennskunni allt árið. Sömu sögu er að segja frá hinum Norðurlöndunum og hefur það gagnleg áhrif á NORDEFCO-samstarfið.“
Mikil samvirkniáhrif
Ari Puheloinen, yfirmaður finnska hersins, segir að í framtíðarsýn NORDEFCO sé að finna pólitísk markmið sem hann hafi sjálfur kallað eftir í hringborðsumræðunum sem Norðurlandaráð og NORDEFCO stóðu fyrir í september. Hann fagnar því að geta nú tekið þátt í norrænu samstarfi, hernaðarlegu og pólitísku, sem byggist ekki aðeins á skynsamlegu raunsæi heldur þorir að takast á við viðkvæm mál.
„Eins og margir Norðurlandabúar vita felst gagnsemi norræns samstarfs um varnarmál í sameiginlegum innkaupum á tækjum og búnaði. Stærsti ávinningurinn felst þó í því margslungna samstarfi sem snýr að viðbúnaði,“ segir Ari Puheloinen.
Eftirlitsflug yfir Íslandi
Höskuldur Þórhallsson alþingismaður er ánægður með hið jákvæða andrúmsloft sem ríkir í varnarmálasamstarfi Norðurlanda. Sem þingfulltrúi í Norðurlandaráði er Höskuldur meðal radda Íslendinga í norrænni umræðu.
„Ég skynjaði það í hringborðsumræðunum í Helsinki að norrænu ríkin hafa aldrei verið eins áhugasöm um samstarf um varnarmál og einmitt nú. Þrátt fyrir að Svíar og Finnar standi utan við Norður-Atlantshafsbandalagið vilja báðar þjóðir auka varnarmálasamstarfið og það finnst mér afar jákvætt.“
Ísland á aðild að NATÓ en hefur ekki eigin herafla. Í febrúar 2014 fóru fram fyrstu sameiginlegu æfingar sænskra og finnskra eftirlitsflugvéla í íslensku loftrými.
„Íslendingar eru friðelskandi þjóð og kæra sig almennt ekki um að Ísland taki þátt í heræfingum. Viðhorfið er þó annað þegar um er að ræða samstarf um varnir, loftrýmiseftirlit eða baráttuna gegn hryðjuverkum,“ segir Höskuldur Þórhallsson.