Norðurlönd skortir skipulag til að vera í stakk búin fyrir næstu krísu

17.04.26 | Fréttir
Ljósmyndari
Stine Østby/norden.org
Forsætisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, kallaði eftir nánara og hagnýtara norrænu samstarfi á sviði viðbúnaðar þegar Norðurlandaráð kom saman á þemaþingi sínu í Ósló. Jafnframt vinnur Norðurlandaráð að því að uppfæra stefnu sína um samfélagsöryggi.

„Við getum og eigum að gera meira til að efla viðbúnað á Norðurlöndum.

Þetta voru skilaboð Jonasar Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, til norrænna þingmanna í þemuumræðum Norðurlandaráðs á Stórþinginu í Ósló.

Hann lagði áherslu á mikilvægi „daglegs viðbúnaðar“, sem snýst ekki aðeins um hernaðarlegar varnir heldur líka um það hvernig samfélagið virkar dags daglega:  „Þau kerfi og það samstarf sem virkar á friðartímum á einnig að virka þegar krísa skellur á.“

Hvað ef krísa skellur á?

Stríðið í Úkraínu dregur upp skýra mynd af þessu. Nú er á fimmta ár liðið frá upphafi allsherjarinnrásarinnar og reynslan þaðan sýnir hvað þarf í raun til að halda samfélaginu gangandi á krísutímum.

Aðstoðarheilbrigðis- og velferðarráðherra Úkraínu, Ihor Kopach, miðlaði reynslu af heilbrigðiskerfi undir gríðarlegu álagi. Hann dró sérstaklega fram mikilvægi öflugra kerfa og getu til að viðhalda heilbrigðisþjónustu við allar aðstæður: „Rafmagnsleysi, mikill fjöldi særðra og allsherjarstríð – markmið okkar er að halda heilbrigðiskerfinu gangandi, óháð aðstæðum.“ 

Ráðherrann þakkaði jafnframt Norðurlöndum fyrir stuðninginn við Úkraínu og heilbrigðiskerfi landsins:

Við finnum fyrir stuðningnum á hverjum degi. Stuðningurinn gerir heilbrigðiskerfi okkar kleift að lifa af.

Ihor Kopach, aðstoðarheilbrigðis- og velferðarráðherra Úkraínu
Ville Vayrynen og Jonas Gahr Støre på Nordisk råds temasesjon 2026

Nordisk råds president Ville Väyrynen og Jonas Gahr Støre på Nordisk råds temasesjon 2026.

Ljósmyndari
Stine Østby/norden.org

Ville Väyrynen, forseti Norðurlandaráðs og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, á þemaþingi Norðurlandaráðs 2026.

Uppfærsla á stefnu um samfélagsöryggi

Á árinu 2026 vinnur forsætisnefnd Norðurlandaráðs að uppfærslu á stefnu ráðsins um samfélagsöryggi, sem var samþykkt árið 2019.

Á þemaþinginu var stefnan rædd í nefndum ráðsins og í forsætisnefndinni. Við uppfærsluna verður tekið mið af breyttri öryggispólitískri stöðu í Evrópu, reynslunni af heimsfaraldrinum og nýrri þekkingu á samfélagsöryggi.

Markmiðið er að stefnan verði grundvöllur að tilmælum til norrænu ríkisstjórnanna og Norrænu ráðherranefndarinnar um frekari eftirfylgni með aðgerðum til að efla viðbúnað á Norðurlöndum.

„Við lifum á tímum og í heimi þar sem allir verða að axla ábyrgð á viðbúnaði. Þetta snýst ekki aðeins um varnarmál eða utanríkismál. Við verðum að vera viðbúin á öllum sviðum og á öllum stjórnsýslustigum, einnig á einstaklingsstigi, segir forseti Norðurlandaráðs, Ville Väyrynen.