Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026

26.02.26 | Fréttir
Ljósmyndari
norden.org
Það sem sameinar verkin 13 sem tilnefnd eru í ár er að þau horfa til fortíðar en eru um leið nátengd Norðurlöndum nútímans. Þau fjalla um foreldra og börn, kyn og kynvitund og einstaklinginn sem rekur stefnulaust í fljótandi heimi.

Á meðal hinna tilnefndu eru bæði skáldsögur, ljóðasöfn og smásagnasafn.  Það sem er óvenjulegt í ár er að bæði norska dómnefndin og dómnefndin fyrir samíska málsvæðið hafa hvert í sínu lagi tilnefnt sama verkið sem í senn er gefið út á norsku og á tornesamísku.

Tilnefningarnar:

Danmörk

Finnland

Færeyjar

Grænland

Ísland

Noregur

Samíska málsvæðið

Svíþjóð

Álandseyjar

Tilkynnt um verðlaunahafann 20. október

Tilkynnt verður um handhafa bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026 hinn 20. október. Verðlaunagripurinn verður veittur í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Helsinki hinn 27. október. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna.

Um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Það getur verið skáldsaga, leikverk, ljóðabók, smásagna- eða ritgerðasafn sem uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.

Markmið hinna fimm verðlauna Norðurlandaráðs er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál, svo og að vekja athygli á verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála.