Þingmenn frá 14 löndum ræddu stöðu mála í Úkraínu
– Það að fulltrúar 14 landa fundi með þessum hætti er merki um það hversu alvarlegt ástandið er. Löndin hafa öll áhyggjur af því að Rússland brjóti svo berlega gegn alþjóðasamningnum sem gerðir hafa verið, segir Hans Wallmark, forseti Norðurlandaráðs.
Það að rússneskir hermenn séu inni á úkraínsku yfirráðasvæði um leið og efnahagurinn líður fyrir mikla spillingu gerir stöðu mála í Úkraínu flókna. Wallmark bendir á að áhugi og eftirspurn sé eftir fleiri fundum af þessu tagi þar sem þingmenn geti skipst á upplýsingum án truflandi milliliða.
– Við lýstum því yfir fyrir hönd Norðurlandaráðs að við gætum miðlað af reynslu okkar til að aðstoða Úkraínumenn í umbótastarfinu. Í Úkraínu hafa menn einkum áhuga á reynslu Eystrasaltsríkjanna af lýðræðisferlinu á tíunda áratugnum, segir Hans Wallmark.
Að sögn Wallmarks sýnir fundurinn einnig að Evrópulönd séu reiðubúin til að standa hlið við hlið þegar hættuástand kemur upp. Það gegnir einnig mikilvægu fyrirbyggjandi hlutverki.
– Auk Krímskaga í Úkraínu standa nú einnig yfir deilur í Transnistríu í Moldavíu og í Abkasíu í Georgíu. Það er vekur áhyggjur, en fundurinn í dag sýnir að vilji er til að finna nýjar gerðir funda sem styðja við lýðræðisþróun, segir Hans Wallmark.
Auk Hans Wallmarks sátu fundinn fyrir hönd Norðurlandaráðs Höskuldur Þórhallsson, forseti Norðurlandaráðs 2015, og forsætisnefndarmennirnir Michael Tetzschner (Noregi), Kimmo Sasi (Finnlandi) og Bertel Haarder (Danmörku).