ALDIN gegn loftslagsvá – Ísland
ALDIN gegn loftslagsvá hlýtur tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025.
ALDIN er hreyfing fólks sem komið er á þriðja aldursskeiðið. Hún er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og hefur á fáeinum árum orðið áberandi meðal umhverfishreyfinga í landinu, sem eru fáar í samanburði við hin norrænu löndin. Hreyfingin er öflug rödd í þjóðmálaumræðunni og hafa meðlimir hennar ritað greinar, skipulagt umræðufundi, skrifað yfirlýsingar um lagafrumvörp og stefnumótun yfirvalda og verið virkir á samfélagsmiðlum. ALDIN hefur einkum beint sjónum að loftslagsvánni en lætur sig einnig varða náttúruvernd og fleiri umhverfismál.
Nafn hreyfingarinnar varð fyrir valinu vegna tvíræðrar merkingar orðsins. Þannig vísar það til aldurs meðlimanna en jafnframt til þess að líta megi á reynslu þeirra sem ávöxt langrar ævi, sem vonandi megi nýta til góðs. Margir af meðlimum ALDINs hafa verið virkir í umhverfis- og náttúruverndarstarfi um árabil og hefur hreyfingin gefið þeim færi á að láta raddir sínar heyrast þrátt fyrir að vera ekki lengur á vinnumarkaði.
Ungt fólk hefur löngum verið meira áberandi í baráttunni gegn loftslagsvá en virðulegt, gráhært fólk. ALDIN gegnir mikilvægu hlutverki af því að aldur og starfsreynsla meðlimanna veitir hreyfingunni ákveðið vægi innan samfélagsins, sem hún nýtir öllum til góða. Um leið vill ALDIN leggja sitt af mörkum til að tryggja að allir hópar samfélagsins eigi sér málsvara í þessum efnum.