Debora H. Kleist

Ljósmyndari
Søren Weile
Debora H. Kleist: Sarsuatitat, skáldsaga, Milik Publishing, 2024. Tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026

Með Sarsuatitat („Straumur lífsins“, hefur ekki komið út á íslensku) hefur Debora H. Kleist skapað bókmenntaverk af miklum listrænum gæðum sem kannar tengingu manneskjunnar við náttúru, tíma og samfélag með hárbeittum stíl og ljóðrænum styrk. Verkið skrifar sig inn í norræna bókmenntahefð þar sem landslag, minni og sjálfsmynd er ofið þétt saman og veitir um leið ákveðið persónulegt og menningarlegt sjónarhorn.

Með skynrænum og hrynbundnum stíl tekst Kleist að bregða upp mynd af lífinu sem órofa hreyfingu – straumi þar sem reynsla einstaklinga, sameiginleg saga og raddir kynslóða renna saman. Textinn vegur salt á milli þess nána og hins algilda og bæði ró og ákafi fá sitt rými. Þannig skapast einlægni sem býður lesandanum að íhuga textann og finna sjálfan sig í honum, án þess að slá neinu föstu um merkingu hans.

Sarsuatitat fjallar um tengsl manneskju og umhverfis hennar með hætti sem hefur sterka staðbundna tengingu en einnig ríkt sammannlegt gildi. Verkið er mikilvægt framlag til norrænna bókmennta fyrir tilstilli þeirrar raddar sem textinn gefur persónum sem oft eru á jaðri hinna ríkjandi frásagna. Þetta er gert af bókmenntalegum myndugleika og fagurfræðilegri meðvitund.

Þessi bók eftir Deboru H. Kleist er nútímaleg, nauðsynleg og hjartnæm. Sarsuatitat er bókmenntaverk sem endurspeglar ekki aðeins lífið sjálft heldur víkkar líka út skilning okkar á því – og er því einkar verðugt framlag til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

 

Debora H. Kleist er fædd árið 1989 í Qaqortoq. Sarsuatitat er fyrsta skáldsaga hennar og kom út árið 2024. Smásaga hennar Olieeventyret úr smásagnasafninu Allatta! 2040, sem kom út 2015, var lesin upp á Norrænu bókasafnavikunni 2016 og komst smásagnasafnið á White Raven-listann sama ár. Þetta er í fyrsta sinn sem Kleist er tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Auk rithöfundarferilsins er hún menntaður jarðfræðingur.