Elina Vähälä

Ljósmyndari
Elina Simonen
Elina Vähälä hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Elina Vähälä (f. 1975) er ein helsta alþjóðlega stjarnan í hópi finnskra fiðluleikara. Um áratugaskeið hefur hún verið þekkt fyrir líflegan flutning sinn og einstaka túlkun sem vekur undantekningalaust aðdáun áheyrenda. Helstu einkennin á fiðluleik Vähälä eru fallegur hljómur og gegnumgangandi gæði, óháð því hvort hún kemur fram sem einleikari með hljómsveit eða í kammertónlistarhópi. Á alþjóðavettvangi hefur Vähälä verið verðugur fulltrúi finnskrar tónlistar með reglulegu tónleikahaldi, einkum í Bandaríkjunum en einnig víða um Asíu og Suður-Ameríku.

Með breiðri efnisskrá sinni hefur Elina Vähälä ávallt leitast við að halda jafnvægi milli ástsælla sígildra verka og spennandi nýrra tónsmíða. Auk sígildra rómantískra lykilverka á borð við konserta eftir Joseph Haydn, Jean Sibelius, Johannes Brahms og Karol Szymanowski hefur Vähälä einnig helgað sig flutningi á samtímatónlist. Meðal annars hefur hún frumflutt og spilað inn á plötur ýmsa konserta eftir finnsku tónskáldin Kalevi Aho, Aulis Sallinen og Jaakko Kuusisto. Hún varð fyrst til þess á Norðurlöndum að flytja verkið „The Red Violin“ eftir John Corigliano. Vähälä er einnig þekktur flytjandi kammertónlistar og hefur komið fram á kammertónlistarhátíðum bæði í Finnlandi og víðar. Einnig hefur hún spilað kammertónlist inn á plötur, meðal annars ásamt hollenska kontrabassaleikararanum Niek de Groot.

Sem fiðluleikari hefur Elina Vähälä skilning á eigin stöðu í langri röð fiðluleikara gegnum aldirnar. Fyrir henni er mikilvægt að ryðja brautina og skapa tækifæri fyrir komandi kynslóðir, bæði sem kennari og stjórnandi tónlistarhátíða. Árið 2009 stofnaði Vähälä ásamt fleirum hina finnsku Strengjaakademíu sem hefur hæfileikarík börn og ungmenni sem markhóp. Frá árinu 2019 hefur hún gegnt stöðu prófessors við Universität für Musik und darstellende Kunst í Vínarborg. Vähälä hefur einnig setið í dómnefnd margra tónlistarkeppna í Finnlandi og víðar og árið 2022 tók hún við sem listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar í Naantali í Finnlandi, sem hefur starfað í 40 ár samfleytt.