Grønne Nabofællesskaber – Danmörk
Grønne Nabofællesskaber hlýtur tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025
80% dönsku þjóðarinnar vilja gera meira fyrir loftslagið og líffræðilega fjölbreytni en vita ekki hvar skal hefjast handa. Samstarfsnetið Grønne Nabofællesskaber auðveldar fólki að koma sér af stað með staðbundnum hópum þar sem hægt er að taka áþreifanleg skref í samvinnu við aðra – til dæmis með því að skipuleggja hópmáltíðir og skiptimarkaði og planta „vasaskógum“. Samstarfsnetið hefur einnig átt frumkvæði að Klimahandledag, degi sem haldinn er árlega til þess að hvetja til aukins stolts, sýnileika og vonar í tengslum við sameiginleg innkaup. Árið 2025 sameinuðust 250 þúsund Danir um umhverfisvænt starf undir merkjum dagsins.
Grønne Nabofællesskaber byggir á skipulagi, því að virkja krafta almennings og styðja við hugmyndir þeirra og áhugasvið. Samstarfsnet er sveigjanlegt form og því nothæft í nærsamfélögum af öllum stærðum og gerðum, allt frá grænlenskum bæjum til stórborga Norðurlanda, enda getur hver hópur innan netsins skilgreint eigin markmið og starfsemi. Á fáeinum árum hefur samstarfsnetið vaxið upp í rúmlega 250 hópa með alls 30 þúsund virka meðlimi um gervalla Danmörku og hefur hugmyndin þegar breiðst út til Þýskalands og Noregs. Grønne Nabofællesskaber eiga einnig í samstarfi við C40, alþjóðlegt samstarfsnet borga, um útbreiðslu í stórborgum.
Grønne Nabofællesskaber hafa sýnt að með því að vinna saman og stunda innkaup í nærsamfélagi verður auðveldara og skemmtilegra að taka þátt í starfi tengdu loftslagsvandanum og minnkandi líffræðilegri fjölbreytni. Samstarfsnetið getur eflt starf að umhverfismálum alls staðar á Norðurlöndum með fordæmi sínu um að virkja almenna borgara til framkvæmda – einn í einu.
Grønne Nabofællesskaber hefur skapað þátttökuhvetjandi og skalanlega hreyfingu þar sem þúsundir almennra borgara breyta loftslagsmarkmiðum í beinar hversdagsaðgerðir.
Samstarfsnetið sýnir það og sannar að hin grænu umskipti hefjast með sameiginlegu átaki á hverjum stað, en hafa jafnframt hnattræna skírskotun.