Handhafi barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2015

Vinder af Nordisk Råds børne- og ungdomslitteraturpris 2015
Photographer
Johannes Jansson/norden.org
Jakob Wegelius frá Svíþjóð hlýtur barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2015.

Um verðlaunahafann

Jakob Wegelius hlýtur barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Það var tilkynnt rétt í þessu á verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í Reykjavík. Jakob Wegelius hreppir verðlaunin fyrir bókina Mördarens apa.

Rökstuðningur dómnefndar

Með Mördarens apa blæs Jakob Wegelius nýju lífi í hið sígilda ævintýraform. Lesandinn slæst í för með górillunni Sallý Jones um sóðalegt hafnarhverfi Lissabon-borgar, í taugatrekkjandi siglingu um heimshöfin og í hið íburðarmikla hof furstans í Bhapur á Indlandi – allt til að freista þess að hreinsa nafn sjómannsins Henry Koskela, sem er besti vinur Sallýjar. Með hreinni frásagnargleði og frábærum persónulýsingum bregður höfundur upp ljóslifandi, sögulegri svipmynd frá upphafi 20. aldar – m.a. með heillandi lýsingum á tækninýjungum úr fortíðinni. Listilega gerðar myndskreytingar höfundar og póstkortin, þar sem ævintýrum Sallýjar eru gerð skil, innsigla heildræna upplifun lesandans.