Johan Harstad
Under brosteinen, stranden! („Undir götusteini, ströndin!“) er hápunktur á einstöku höfundarverki Johans Harstad, skáldsaga upp á tæpar þúsund síður með flóði af alvarlegri og kostulegri þekkingu, kímni, fróðleiksfýsi, gríðarlegu magni af bókmenntalegri tilraunamennsku og aðdáunarverðum leiklistarfræðilegum útleggingum. Mögulegt leiðarstef skáldsögunnar er hin undursamlega uppgötvun hlutar sem er í laginu eins og götusteinn og sem á að gera þeim sem snerta hann kleift að upplifa heilt líf á aðeins sjö mínútum.
Þrátt fyrir fjölda margslunginna atburða, stökk í tíma og breytilegt sögusvið tekst Harstad að leiða bæði lesendur og hinar fjölmörgu persónur gegnum víðfeðma og sundurleita frásögn á leikandi léttan, óvenju gefandi og hnökralausan hátt.
Í Under brosteinen, stranden! virðist búa forvitni sem er í senn lífsreynd og ungæðisleg. Á einum stað í skáldsögunni skrifar höfundurinn þessa staðhæfingu af árvekni og sjálfsöryggi: „Mikilvægur liður í vinnubrögðum ungra pilta í aðstæðum þar sem ekkert sérstakt er að gerast er einmitt að komast að því hvað sé eiginlega að gerast, því þeir eru sannfærðir um að eitthvað, dulið eður ei, hljóti að vera að gerast. Þessu fylgir vanalega heilmikið ráp í kringum hluti og byggingar, með votti af tilfinningu fyrir því að athæfi manns sé afurð samfélagslegrar samvisku öðru fremur, af því að ef eitthvað væri að gerast hér og þeir yrðu spurðir seinna af hverju þeir hefðu ekkert sagt eða gert í því, þá mun það ekki líta vel út, svo sannarlega ekki.“
Meðal margs annars er Under brosteinen, stranden! tvímælalaust pólitísk skáldsaga fyrir okkar tíma og geymir þannig bæði örvinglan og reiði, er laus við tálvonir og lætur gamminn geisa. Hún er uppfull af nostalgíu og minnir á vísindaskáldsögu úr samtímanum, líkt og fyrirboði á formi eldingar. Hún er ekki síst grípandi í lýsingum höfundar á mannlegum viðfangsefnum sem eru hjartnæmar í ögrun sinni og lausar við tilfinningasemi, bæði gagnvart skáldsögunni og heiminum.
Johan Harstad, fæddur 1979, er einn sérstæðasti og áhugaverðasti rithöfundur sinnar kynslóðar. Höfundareinkenni hans komu strax í ljós í fyrsta verki hans frá árinu 2001, hinni stuttu Herfra blir du bare eldre. Síðan þá hefur Johan Harstad sannað sig sem afkastamikill og fjölhæfur höfundur með verkum sem verða sífellt áhrifameiri og flétta saman vísanir í dægurmenningu og goðsagnir með nýstárlegri nálgun sem kemur öllum bókmenntahefðum í uppnám.