Minik Rosing jarðfræðiprófessor – Grænland
Minik Rosing, prófessor í jarðfræði, hlýtur tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025
Minik Rosing er tilnefndur fyrir framsýnt og rannsóknadrifið starf með svokallað jöklamjöl – náttúrumiðaða loftslagstækni sem gæti dregið úr losun koltvísýrings á heimsvísu og jafnframt eflt fæðuöryggi á sumum af viðkvæmustu svæðum heims.
Minik Rosing hefur skrásett hvernig nýta má „jöklamjöl“, fíngerðan og steinefnaríkan salla sem myndast náttúrulega undir íshettu Grænlands, til svonefndrar aukinnar veðrunar. Þegar jöklamjöli er dreift á landbúnaðarland hvarfast kolsýran í koltvísýringi andrúmsloftsins – náttúrulegt ferli sem bindur koltvísýringinn í jörðinni svo að hann losnar ekki út í andrúmsloftið sem gróðurhúsalofttegund. Rannsóknir sýna að með einu tonni af jöklamjöli má binda allt að 14,5 kíló af koltvísýringi. Sé því dreift á aðeins einn hektara getur það dregið úr koltvísýringi í andrúmsloftinu um allt að 728 kíló.
Auk áhrifanna á loftslagið hefur jöklamjöl jákvæð áhrif á frjósemi landbúnaðarlands – einkum á svæðum með hitabeltisloftslagi og heittempruðu loftslagi þar sem jörðin er oft þurrausin og næringarsnauð. Tilraunir í Gana hafa sýnt allt að 35% meiri haustuppskeru á kornökrum, sem gerir þessa tækni einkar mikilvæga á svæðum þar sem fæðuöryggi er lítið.
Verkefnið markar vísindaleg tímamót en er einnig hagnýt lausn sem veitt getur innblástur almennum borgurum, bændum og ráðamönnum um allan heim. Einnig býr það yfir einstökum möguleikum til skölunar, þar sem jöklamjölið verður til náttúrulega á Grænlandi í mun meira magni en unnt er að nýta, og tæknin útheimtir engin flókin ferli – aðeins flutning milli staða og kynningu á eiginleikum þess á hverjum stað. Þannig koma sjálfbær náttúrunýting og hnattræn áhrif saman í starfi Miniks Rosing.
Verkefni Miniks Rosing er skýrt dæmi um það hvernig norrænar rannsóknir og auðlindir geta skapað lausnir sem virkja almenning, takast á við loftslagsvandann og stuðla að því að hnattrænum sjálfbærnimarkmiðum sé náð. Minik Rosing sýnir það að Grænland – sem margir sjá sem beina táknmynd fyrir afleiðingar loftslagskreppunnar – getur einnig leikið lykilhlutverk í lausn vandans.
Starf Miniks Rosing hefur sterkan, norrænan grundvöll, skjalfest áhrif á loftslagsbreytingar og alþjóðlega skírskotun. Því liggur beint við að tilnefna hann til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025.