Verðlaunahafi tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2022

Karin Rehnqvist
Photographer
Magnus Fröderberg, norden.org
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2022 hlýtur Karin Rehnqvist frá Svíþjóð fyrir verkið Silent Earth

Rökstuðningur dómnefndar

Silent Earth er svimandi og ákaflega hvetjandi verk sem hafði mikil áhrif á dómnefndina.  Í því sprettur fram mikilfengleg leikræn tónafrásögn fyrir kór og hljómsveit sem hefur loftslagsvandann í bakgrunni og leiðir hlustandann frá ís yfir að eldi af vægðarlausum krafti. Með þessu verki sýnir Rehnqvist að hún hefur nánast fullkomið vald á hinum tæknilegu hliðum tónsmíða.  Með meistaralegu handbragði særir Rehnqvist einnig fram hinn einstaka hæfileika tónlistarinnar til að skilgreina jöfnum höndum tíma og rúm, skapa lifandi myndir úr tónum og sterka tilfinningaupplifun sem hver og einn getur túlkað að vild. Í öllu myrkrinu sprettur sköpunarkrafturinn fram og lætur dæluna ganga um að kannski felist von mannkynsins einmitt í honum.

 

Textann við Silent Earth samdi Kerstin Perski.