Hlustum á börn og ungmenni!

18.11.20 | Viðburður
Barn i skolegård
Photographer
Yadid Levy / Norden.org
„Börn í áhættuhópum þurfa stuðning á eigin forsendum og til þess þarf þverfaglegt samstarf. Hvernig er hægt að skapa samhæft og heildrænt þjónustutilboð sem hentar börnum og ungmennum í áhættuhópum og fjölskyldum þeirra? Þetta hefur verið grundvöllur norræna verkefnisins „Þverfagleg samræming úrræða fyrir börn og ungmenni í áhættuhópum“.

Upplýsingar

Dates
18.11.2020
Time
12:00 - 15:30
Location

Konferansen er digital og alle påmeldte får tilsendt link.
Noregur

Hvernig er hægt að skapa samhæft og heildrænt þjónustutilboð sem hentar börnum og ungmennum í áhættuhópum og fjölskyldum þeirra? Þetta hefur verið grundvöllur norræna verkefnisins „Þverfagleg samræming úrræða fyrir börn og ungmenni í áhættuhópum“. 

Á ráðstefnunni munu þátttakendur miðla reynslu og sýna dæmi frá verkefnum landanna. Markmið ráðstefnunnar er að hvetja til meiri samræmingar þannig að börn og ungmenni fái þá aðstoð sem þau þurfa og ljúki skólagöngu sinni. Verkefnið sýnir fram á hversu mikilvægt er að reynsla barna og ungmenna sé grundvöllur þess stuðnings sem þau fá.

Skráningarfrestur: 6. nóvember 2020