Febrúarfundur Norðurlandaráðs 2026
Ljósmyndari
Stine Østby/norden.org
Febrúarfundur Norðurlandaráðs fer fram 23.–24. febrúar 2026 í Hróarskeldu í Danmörku. Á fundinum koma allar nefndir og forsætisnefndin saman. Einnig verður sameiginleg kvölddagskrá í dómkirkjunni í Hróarskeldu þann 23. febrúar. Fundinn sækja fulltrúar Norðurlandaráðs, ráðherrar og aðrir gestir.
Upplýsingar
Dagsetning
23 - 24.02.2026
Tími
08:00 - 16:00
Staðsetning
Konferenshotell Comwell
Vestre Kirkevej 12
4000 Roskilde
Danmörk
Gerð
Fundur Norðurlandaráðs
Hlekkur á annan vef
Febrúarfundur Norðurlandaráð er hluti af reglulegum fundum þar sem þingmenn frá norrænu löndunum koma saman til að ræða málefni sem varða norrænt samstarf í hinum ýmsu nefndum. Tilgangur febrúarfundarins er að fylgja eftir ýmsum pólitískum ferlum, samræma vinnu mismunandi nefnda og undirbúa samnorrænar aðgerðir fyrir þetta ár.
Árið 2026 fer fundurinn fram í Hróarskeldu, þar sem danska þjóðþingið mun hýsa þá 87 norrænu þingmenn sem taka þátt. Á meðal helstu viðfangsefna fyrsta fundar þessa árs eru að þrjú ár verða liðin frá innrás Rússlands í Úkraínu og spennan í tengslum við Grænland.